Erlent

Kjörstaðir opnir í Ísrael

Telma Tómasson skrifar
Talið er líklegt að Netanyahu gæti misst þingmeirihluta sinn.
Talið er líklegt að Netanyahu gæti misst þingmeirihluta sinn. Vísir/AP

Kjörstaðir voru opnaðir í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá árás Hamas-liða 7. október 2023, sem leiddi til blóðugra átaka á Gaza. Flestar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarbandalag Benjamins Netanyahu forsætisráðherra muni missa meirihluta sinn á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Á sama tíma er talið ólíklegt að stjórnarandstöðuflokkar, með Gadi Eisenkot í broddi fylkingar, nái því 61 þingsæti sem þarf til að ná meirihluta og mynda ríkisstjórn, eftir því sem fram kemur í erlendum fréttamiðlum. 

Vegna hlutfallskosningakerfis í Ísrael er hefð fyrir samsteypustjórnum og baráttan um völdin getur leitt til óvæntra bandalaga, eins og dæmi eru um, eftir því sem fram kemur í breska ríkismiðlinum BBC. 

Myndin er tekin á kosningafundi Gadi Eisenkot á sunnudag. Vísir/AP

Þetta gæti þýtt að fram undan séu vikur eða mánuðir af pólitísku þrefi. Talið er að um 70 þúsund Ísraelar, búsettir erlendis, hafi komið heim til að kjósa og um hálf milljón manna mun greiða atkvæði sitt í fyrsta sinn.


Tengdar fréttir

Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela

Öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum verður lokað á meðan kosningar fara fram í Ísrael. Palestínumönnum verður meinaður aðgangur að öllum landtökubyggðum.

Landtökumenn réðust á evrópska erindreka

Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×