Íslenski boltinn

KR á nú tvo yngstu marka­skorara sögunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexander Rafn Pálmason og Fannar Heimisson eru nú tveir yngstu markaskorarar í sögu efstu deildar karla í fótbolta.
Alexander Rafn Pálmason og Fannar Heimisson eru nú tveir yngstu markaskorarar í sögu efstu deildar karla í fótbolta. Sýn Sport

Fannar Heimisson skoraði eitt af átta mörkum KR-inga í lokaleik Bestu deildar karla um helgina og kom sér þar með í hóp með yngstu markaskorurunum í sögu efstu deildar.

Fannar er nú sá næstyngsti en á laugardaginn var hann aðeins fimmtán ára, sex mánaða og sautján daga. Hann er fæddur í aprílmánuði árið 2011.

Fannar hafði komið við sögu í fimm öðrum leikjum í Bestu deildinni en skoraði nú sitt fyrsta mark í deildinni. Hann er enn að spila með 3. flokki KR. Markið má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan eins og öll mörkin úr þessum markaleik í Vesturbænum.

KR á því tvo yngstu markaskorarana í sögu efstu deildar karla því Alexander Rafn Pálmason eignaðist metið í maí 2025 og hefur átt það síðan.

Alexander Rafn sló 31 árs gamalt met Eiðs Smára á sínum tíma en í sumar hafa tveir leikmenn komist á milli Alexanders og Eiðs.

Blikinn Arnar Bjarki Gunnleifsson hafði fyrr í sumar orðið næstyngsti markaskorarinn þegar hann skoraði fyrir Breiðablik í 3-1 sigri á KA í júní. Nú dettur Arnar Bjarki niður í þriðja sætið á þessum lista.

Þriðji KR-ingurinn meðal sjö yngstu markaskoraranna er síðan Sigurdur Breki Kárason, sem var sextán ára rúmlega fimm mánaða þegar hann skoraði fyrir KR á móti Blikum fyrr í sumar. Sigurdur Breki var með tvö mörk og fjórar stoðsendingar í Blikasigrinum um síðustu helgi.

Allir þessir þrír komust upp fyrir Ingólf Sigurðsson sem átti KR-metið í næstum því sextán ár en hann var sextán ára og rúmlega sex mánaða þegar hann skoraði fyrir KR sumarið 2009.

  • Yngstu markaskorarar í efstu deild
  • 15 ára – 1 mánaðar og 3 daga
  • Alexander Rafn Pálmason fyrir KR á móti ÍBV 2025
  • 15 ára – 6 mánaða og 17 daga
  • Fannar Heimisson fyrir KR á móti Breiðabliki 2026
  • 15 ára – 7 mánaða og 9 daga
  • Arnar Bjarki Gunnleifsson fyrir Breiðablik á móti KA 2026
  • 15 ára – 8 mánaða og 11 daga
  • Eiður Smári Guðjohnsen fyrir Val á móti ÍBV 1994
  • 15 ára – 8 mánaða og 30 daga
  • Þórarinn Brynjar Kristjánsson fyrir Keflavík á móti ÍBV 1996
  • 15 ára – 8 mánaða og 30 daga
  • Viktor Bjarki Daðason fyrir Fram á móti Val 2024
  • 16 ára – 5 mánaða og 12 daga
  • Sigurdur Breki Kárason fyrir KR á móti Breiðabliki 2026
  • 16 ára – 3 mánaða og 19 daga
  • Arnar Gunnlaugsson fyrir ÍA á móti Keflavík 1989
  • 16 ára – 6 mánaða og 14 daga
  • Ingólfur Sigurðsson fyrir KR á móti ÍBV 2009



Fleiri fréttir

Sjá meira


×