Skoðun

Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frá­sögn

Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar

Í liðinni viku sat undirrituð fund Samtaka ferðaþjónustunnar í Hjálmakletti í Borgarnesi. Fundurinn er liður í fundarröð SAF og ber yfirheitið Mótvindur – eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar? Aðalumræðuefni er aukin skattlagning ríkisstjórnarinnar sem kemur niður á ferðaþjónustunni með margvíslegum hætti.

Á fundinum var pallborð með þingmönnum kjördæmisins. Sigurjón Þórðarson mætti reyndar fyrir Eyjólf Ármannsson og Sandra Sigurðardóttir mætti í staðinn fyrir Ingvar Þóróddsson sem ætlaði að mæta fyrir Maríu Rut en hætti við. Það kemur kannski ekki á óvart að enginn vilji sitja og svara fyrir aukna skattlagningu ríkisstjórnarinnar frá Viðreisn.

Það var margt áhugavert sem kom fram í pallborðinu en mig langar til að draga fram hér svör stjórnarþingmanna þegar þeir voru spurðir beint út í skattahækkanir. Byrjum á þingmanni Samfylkingarinnar Örnu Láru Jónsdóttur.

Spyrill: „Þið sögðuð hátt og snjallt fyrir síðustu kosningar við kjósendur um land allt að við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. Þetta var stefnubreyting frá Samfylkingunni því fyrri forverar ykkar töluðu á þá leið að það ætti að hækka virðisaukaskattinn á ferðaþjónustuna, en þarna kom nýr tónn í Samfylkinguna frá þér og fleirum: „Við ætlum ekki að hækka skatt á ferðaþjónustuna.“ Hvað breyttist?

Arna Lára: „Ég hef nú aldrei sagt það, svo það sé sagt, ég hef aldrei sagt það og þú verður að taka orð mín trúanleg……Það er náttúrulega ekki verið að hækka skattinn heilt yfir á ferðaþjónustuna, það er verið að taka anga af henni sem eru baðlónin sem má líka flokka undir afþreyingu….þetta er angi sem er að bera sig vel..það er auðveldara að gera það þegar afkoman er góð það er erfitt að sækja tekjur þar sem afkoman er lítil, það gefur auga leið… Það eru líka ákveðin rök í því að hækka virðisaukaskattinn af baðlónum af því það má flokka það sem afþreyingu bara alveg eins og ég veit þið eruð ekki hrifin af því ég segi það, við erum að borga hærri virðisaukaskatt af bíómiða, ég veit þið eruð ekki ánægð með þessa samlíkingu en þetta er samt þannig. Það má alveg færa rök fyrir því að þetta gæti átt heima í sama þrepi og afþreying. Og ég þakka hérna bara fyrir fleiri hugmyndir…..”

Áfram heldur hún: „Ég get alveg sagt það, sem er erfitt fyrir fólk, mér finnst skattar ekkert erfiðir, ég horfi bara á allt kerfið sem er undir. Við erum bara að reka hér sterk kerfi, menntakerfi, heilbrigðiskerfi, við erum að byggja upp gott vegakerfi. Þannig mér finnst umræðan um skatta ekkert erfið, við þurfum bara að fá skatta inn til þess að reka gott samfélag, flóknara er það ekki og ég er ekkert hrædd við að ræða orðið skattar. Við eigum bara að vera stolt af því, stolt af kerfunum okkar, stolt af sterku heilbrigðiskerfi, stolt af sterku menntakerfi. Þess vegna þurfum við hvert og eitt okkar að leggja til. Mér finnst þetta ekki erfitt svo það sé sagt.

Þetta sannar það sem við höfum alltaf vitað – Samfylkingin elskar skatta og hún borðaði bara krít fyrir síðustu kosningar.

Vindum okkur að svörum fulltrúa Flokks fólksins í pallborði um sama umræðuefni.

Spyrill: „Sigurjón, finnst þér þetta erfitt? Það þekkja allir síldarævintýrið á sínum tíma, síldin kom og síldin fór, og hún fór vegna ofveiði. Mun ferðaþjónustan, ég er ekki að segja að hún hverfi, mun hún hljóta þannig skaða að hún mun minnka?“ Sigurjón: „Ég get nú sagt þér það að þar sem ég var aðeins á sjó í sumar að síldin er komin og ég bý á Siglufirði og það er kannski munurinn nú og var hér áður að nú má enginn fiska síldina og það er kannski vandi sem þar er uppi.“ Spyrill: „Þú skilur samlíkinguna hjá mér?“ Sigurjón: „Nei.“ Spyrill: „Síldarævintýrið, gríðarleg uppbygging um land allt, Siglufjörður, mikil umsvif, síldin hvarf vegna ofveiði.“ Sigurjón: „Já, þú segir það, en síldin er allavega komin aftur þannig við getum glaðst yfir því en það er því miður þrengra um það að fá að veiða hana.“

Svo skipti hann bara um umræðuefni!

Heyrum nú hvernig fulltrúi Viðreisnar svarar spurningum spyrils um skattahækkanir. Spyrill: „Þið sögðuð líka, framan í ferðaþjónustuna, Þorgerður Katrín og forysta flokksins, að þið ætluðuð ekki að hækka skattinn á ferðaþjónustuna, þið ætluðuð ekki að fara þessa vegferð. Hvað viltu segja um þetta? Eru þetta svikin loforð eða er þetta bara fórnarkostnaðurinn við að vera í ríkisstjórn?“

Sandra: „Það eru alltaf einhverjar málamiðlanir, það er bara þannig. Við erum auðvitað ekki, þú veist, flokkur skatta. Ég held það viti það allir.“ Spyrill: „Við sjáum hér 10, 7 milljarða skatta á ferðaþjónustuna, hvað viltu segja við þessu?“

Sandra: „Ég meina, þú veist, hvað vil ég segja, það sem er partur af þessu er, virðisaukaskatturinn, hækkaður upp í 24 eða afnema, þú veist, þessa undanþágu, þú veist, að við séum að fara aftur í 24 prósent, þannig að þarna, það var alveg skýrt að við töluðum um auðlindagjöld, þú veist að við vildum sanngjörn, að”

Spyrill: „Já, þið sögðuð það með náttúrupassann, en varðandi virðisaukaskattinn, hvað breyttist? Þið sögðuð að þið ætluðuð ekki að hækka skatta á ferðaþjónustu.“ Sandra: „Já, ég meina, þú veist, það sem að ég held að ég geti bara sagt það hér, ég meina að náttúruböðin, eða þú veist, lónin, eins og þeim hefur fjölgað mjög mikið og þetta er munaðarvara, þetta er lúxusvara sem kostar og þetta var svona….. Baðlónin eru munaðarvara, þú veist, og við erum fræg fyrir baðlónin hér á Íslandi og hér koma ferðamenn til þess að koma í baðlónin. Þannig það er auðvitað misjafnt eftir hvaða leið fólk fer, hvort aðgangseyrir sé 8000 þús. eða 16.000 þús., hverju munar hvort hækkunin fari út í verðlag 800 eða um 1500 kr.

Spyrill: „Við sáum tölurnar hérna áðan, varðandi baðlónin, greininguna frá Deloitte.“ Sandra: „Ég reyndar missti af því, ég kom of seint.“ Spyrill: „Þú varst á fundinum á Selfossi, þú sást kynninguna þar og hefur haft tök á að kynna þér hana. Hvernig getur þinn flokkur staðið í þeirri vegferð þegar þið sögðuð allt annað fyrir kosningar?“ Sandra: „Já, það sem ég get bara sagt hér, og mér líður smá eins og biluð plata, það var innviðaskuld hér þegar við tókum við og það þarf meðal annars að loka gatinu en innviðirnir eru svolítið að brenna og við þurfum að laga þá. Ef við ætlum að taka vel á móti ferðamanninum þá þurfum við að geta tekið vel á móti þeim og að innviðirnir séu til staðar.

Spyrill: „Einkaframtakið er búið að fjárfesta fyrir tugi milljarða í innviðum, ríkið var ekki að gera það og þá komið þið í ríkisstjórninni og þú ert fulltrúi hennar og viljið skattleggja ykkur út úr vandanum.“ Sandra: „Já, við fáum ferðamenn, ég kom inn á þetta áðan, það eru 2,2 milljónir ferðamanna sem koma hingað og við sem íbúar hér í þessu landi, sem eru 260 þúsund sem, greiða skatt hér. Við stöndum ekki undir þessari innviðauppbyggingu og þar af leiðandi þurfa ferðamennirnir að koma. Við förum erlendis og við borgum þar líka með glöðu geði þegar við erum að ferðast. Það hefur alveg sýnt sig að greiðsluvilji ferðamanna er til staðar. Ef við berum okkur líka saman við Norðurlöndin hvað virðisaukaskatt varðar þá erum við samkeppnishæf, við erum ekki hærri, Skotland er hærra en við, við erum á svipuðum stað og Norðurlöndin líka. Samkeppnishæfni okkar hvað þetta varðar er til staðar.

Spyrill: „Svo bætir þú við gistináttaskattinum, kílómetragjaldinu, ísavíagjöldunum og svo framvegis og framvegis.

Ergo niðurstaða þessarar umræðu er að það má engum fyrirtækjum ganga vel, þeim ber að skattleggja og ríkisstjórnin hefur engan skilning á fjárfestingu í ferðaþjónustu og þau gera sér ekki grein fyrir að verðlag á Íslandi er komið að þolmörkum. Þetta pallborð var mun lengra. Ég hvet áhugasama til þess að horfa á fundinn í streymi enda margt kostulegt sem kom þar fram. Tengil á fundinn má finna hér. 

Að lokum get ég ekki annað en séð fyrir mér stjórnarþingmennina vappandi um með nefið hans Gosa þessa dagana. Vonandi að nefin rekist ekki á.

Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar í Borgarbyggð.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×