Skoðun

Hug­renningar í kjöl­far sýknudóms í Lands­rétti

Helgi Gunnlaugsson skrifar

Í framhaldsnámi mínu í afbrotafræði við bandarískan háskóla tók ég refsirétt við lagadeild skólans. Í einu námskeiðanna tókum við fyrir mál sem rifjaðist upp fyrir mér í kjölfar nýlegs sýknudóms í Landsrétti. Málið gekk undir heitinu Regina vs Morgan dæmt 1975 við breskan dómstól.

Kynferðisbrotamálið

Fjórir félagar fóru út á lífið þar sem áfengi var haft um hönd. Eftir lokun barsins vildu þeir halda gleðskapnum áfram. Einn þeirra (yfirmaður í hernum) sagði að kona sín væri til í fjörugt kynlíf (e. kinky) og bauð mönnunum (undirmenn hans) heim til sín. Rétt áður en þeir stigu inn sagði karlinn að ekki láta sér bregða þó konan sýndi mótspyrnu – bara til að auka spenninginn. Karlinn neitaði reyndar síðar að hafa viðhaft þessi ummæli en vitnisburður félaga hans metinn trúverðugur. Konan vaknaði upp með andfælum sýndi mótspyrnu en allir karlarnir náðu fram vilja sínum með aðstoð eiginmannsins. Undirréttur dæmdi þremenningana seka um nauðgun og eiginmanninn fyrir hlutdeild í brotinu. Við áfrýjun taldi meirihluti æðra dómstigs lagalegan grundvöll fyrir sýknu án þess þó að breyta niðurstöðu undirréttar. Hvers vegna sýkna?

Einlæg trú geranda á samþykki (huglægt mat)

House of Lords taldi að þremenningarnir hefðu í einlægni trúað á samþykki konunnar og þess vegna ekki sýnt refsiverðan ásetning (mens rea) til að fremja nauðgunina. Ekki unnt á þessum tíma að dæma eiginmann fyrir nauðgun á eiginkonu sinni. Fram kom í reifun málsins að hjónin stóðu í skilnaði en það virtist ekki hafa áhrif á dómsniðurstöðu. Málið vakti mikla athygli og gagnrýni á sínum tíma. Varð kennslubókardæmi við lagadeildir víða um heim. Sýkna samkvæmt refsilöggjöfinni.

Skynsamt mat geranda á samþykki (hlutlægt mat)

Í framhaldi var vakin athygli á því að gera þurfi greinarmun á tvenns konar samþykki. Annars vegar einlægri trú geranda á samþykki þolandans (e. honest belief in consent) jafnvel þótt það mat væri ekki skynsamlegt. Meirihluti House of Lords taldi löggjöfina byggja á þessum skilningi á samþykki. Aftur á móti var bent á að samþykki þolanda þyrfti að byggja á skynsömu mati á aðstæðum (e. reasonable belief in consent) eins og það lítur út fyrir þriðja óháðum aðila. Ef stuðst hefði verið við þennan skilning á samþykki hefði túlkun meirihluta House of Lords á sýknu því væntanlega orðið önnur. Í dag þarf samþykki þolanda að vera byggt á skynsömu mati í Bretlandi.

Landsréttur

Landsréttur sýknaði nýlega í nauðgunarmáli þar sem beitt var mjög grófu ofbeldi. Spurningin sem vaknar er hvort einlæg trú geranda á samþykki þolanda hafi verið grundvöllur sýknunnar – þótt sú niðurstaða hafi ekki verið byggð á skynsömu mati á aðstæðum?

Höfundur er prófessor í félags- og afbrotafræði við HÍ.




Skoðun

Sjá meira


×