Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar 22. október 2026 13:17 „Velkomin heim,“ sagði fólk þegar ég flutti aftur á Bíldudal. Ég hafði einungis verið þar eina önn í starfsnámi, búið á höfuðborgarsvæðinu í eitt ár í millitíðinni og kom aftur til að hefja störf hjá Vestfjarðastofu. Það var ekkert hikað við að kalla mig Bílddæling. Ég tilheyrði. Mér þykir enn ótrúlega vænt um þessar móttökur. Það er stórt skref að flytja á nýjan stað og maður getur velt ýmsu fyrir sér áður en lagt er af stað. Hvernig verður félagslífið? Mun ég kynnast fólki? Hvaða möguleika hef ég til að þróast í starfi? Mín reynsla af Vestfjörðum er sú að hér séu tækifærin miklu fleiri en ég hafði gert mér grein fyrir. Stundum velti ég fyrir mér hvernig í ósköpunum ég, sem ólst upp í Hafnarfirði og uni mér best í miðborg Reykjavíkur, í þéttbýli, mannlífi og menningu, endaði á því að búa á Vestfjörðum og elska það. Úr skólagöngunni í Hafnarfirði sat Gísli á Uppsölum eftir sem einhvers konar fulltrúi Vestfirðinga í mínum huga. Af því virðist ég hafa dregið þá ályktun að þar byggi aðallega gamaldags og furðulegt fólk. Svo voru það stór og brött fjöll, snjóflóð og fréttir af erfiðum, jafnvel hættulegum vegum. Sannarlega enginn staður fyrir unga höfuðborgarmær á Yaris. Ég hafði líka lært að kvótakerfið hefði lagt byggðir í eyði og fengið þá mynd að fólk væri helst að reyna að komast í burtu. Það hljómaði því ekki eins og atvinnutækifærin biðu mín þarna. Og svo var það sjókvíaeldið. Um það hafði ég auðvitað myndað mér afdráttarlausa skoðun fyrir sunnan: hræðileg iðja, knúin áfram af illu fólki sem hataði náttúruna. Málið virtist afskaplega einfalt séð úr Hafnarfirði. Eftir að ég flutti vestur kynntist ég fólkinu á bak við störfin og sá hlutina í öðru samhengi. Ég sá blómleg samfélög og atvinnuuppbyggingu, kynntist fólki sem hafði flutt hingað og hitti fólk í fiskeldi sem lét sér annt um umhverfið sitt og vildi vanda til verka. Smám saman rann upp fyrir mér að veruleikinn væri flóknari en hugmyndirnar sem ég hafði í upphafi. Ég ætla þó ekki að fjalla um sjókvíaeldi í þessum pistli. Framboðið af slíkum pistlum er ágætt. Þessi endurskoðun náði líka til þjónustunnar. Þegar ég bjó á höfuðborgarsvæðinu og sá fréttir af fólki á landsbyggðinni að kalla eftir bættri þjónustu hugsaði ég stundum: „Hvers vegna er þetta fólk endalaust að væla? Ef það vill svona mikla þjónustu getur það bara flutt í bæinn. Hvers vegna ætti ég að borga fyrir þjónustu sem fáeinir nýta og ég mun aldrei nota sjálf?“ Þetta þótti mér greinilega ágætis lausn á byggðamálum á meðan ég bjó sjálf í bænum. Nú hefur dæmið snúist við og ég er sjálf orðin þessi manneskja sem kallar eftir aukinni þjónustu á landsbyggðinni. Ég hef eignast heimili, fjölskyldu, vini og starf sem mér þykir vænt um. Þá hljómar „þetta er þitt val, þú getur bara flutt“ allt öðruvísi. Ég vil vera hér og leggja mitt af mörkum til þess að hér sé gott að búa. Og já, ég vil líka geta sótt þá þjónustu sem ég þarf og á rétt á. Ég greiði líka fyrir þjónustu á höfuðborgarsvæðinu sem ég hef ekki greiðan aðgang að. Smám saman áttaði ég mig á því að það sem ég sjálf nýti er ansi þröngur mælikvarði á hvaða þjónustu eigi að veita. Við erum öll í þessu saman, þó við búum ekki öll á sama stað. Það voru mínir hagsmunir þegar ég bjó fyrir sunnan að fólk á Vestfjörðum hefði aðgang að góðri þjónustu, rétt eins og það eru mínir hagsmunir í dag að fólk um allt land hafi tækifæri til að lifa góðu lífi. Ég hefði viljað átta mig á þessu fyrr og vill gjarnan sjá þennan skilning endurspeglast betur í stefnumótun ríkisins. Það er einmitt vegna þess hvað mér þykir gott að búa hér sem ég vil sjá þjónustuna eflast. Ég hef enga löngun til að pakka saman og yfirgefa lífið sem ég hef byggt mér upp. Þó ég kalli eftir meiri þjónustu hef ég enn ekki þurft að kalla eftir fleiri áhugamálum. Þar er dagskráin satt að segja orðin nokkuð þétt. Fólk spyr mig stundum þegar ég segist búa á Vestfjörðum: „Hvað gerirðu eiginlega á daginn?“ Ég veit aldrei alveg hvar ég á að byrja. Staðreyndin er sú að ég er miklu virkari í félagslífi og íþróttastarfi hér en ég var nokkurn tímann á höfuðborgarsvæðinu. Frá því ég flutti vestur hef ég meðal annars tekið þátt í Kvennakór Ísafjarðar, Litla leikklúbbnum, blaki, prjónaklúbbi, kvennafótbolta, ringó og zumba. Ég hef farið í bíó, gususaunur, á þorrablót og í ferðir með Ferðafélagi Ísfirðinga. Ég hef tekið þátt í starfi Rauða krossins, sest í stjórn Heilsubæjarins Bolungarvíkur og byrjað í píanónámi í Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Spurningin er því frekar hvað ég hef tíma til að gera. Þetta er heldur ekki listi yfir eitthvað sem ég tek þátt í af því að ekkert annað býðst. Ég hef getað valið það sem mér finnst skemmtilegt og látið annað eiga sig. Það er enn ótalmargt eftir sem kemst einfaldlega ekki fyrir í dagatalinu. Ef eitthvað vantar má stundum bara búa það til. Vinahópurinn minn elskar karaoke. Slík kvöld eru kannski ekki á hverju strái, en þá höldum við þau sjálf. Fólk mætir, syngur og styður við menningarlífið. Skilgreiningin á menningu má alveg vera rúm þegar hljóðneminn gengur á milli. Ég hef líka fundið tækifærin í starfi. Sem félagsráðgjafi finn ég að menntun mín og þekking eru metin á svæðinu. Hér hef ég kynnst spennandi störfum og sé fjölmarga möguleika, sérstaklega á sviði félags- og heilbrigðisvísinda. Flutningurinn vestur hefur opnað mér leiðir til starfsframa sem ég hafði ekki séð fyrir mér. Nálægðin við fólk skiptir þar miklu. Það er stutt í stjórnendur, kjörna fulltrúa og fólk sem vill vinna að góðum hugmyndum. Tengsl myndast og maður fær svigrúm til að prófa eitthvað nýtt. Ég upplifi að rödd mín hafi vægi og að ég geti haft áhrif á samfélagið sem ég bý í. Þessi tengsl ná líka út fyrir vinnuna. Maður kynnist fólki í ólíku samhengi, finnur fyrir náungakærleika og verður sjálfur hluti af því sem heldur samfélaginu gangandi. Móttökurnar sem ég fékk vekja líka hjá mér löngun til að taka vel á móti næsta manni. Svo eru það hversdagslegu forréttindin. Að geta sótt ýmsa daglega þjónustu í göngufjarlægð og eyða litlum tíma í umferð. Að búa nú í Bolungarvík og hafa útsýni yfir til Hornstranda, Óshyrnu og Þuríðar sundafyllis. Að geta séð borgarísjaka og hvali stökkva á sjónum. Það er ótrúlegt hvað getur orðið hluti af venjulegum degi. Auðvitað er ekki allt fullkomið á Vestfjörðum. Hér þarf að tryggja þjónustu og takast á við ýmsar áskoranir. En hvar er svo sem allt fullkomið? Ég kann vel að meta lífið hér og vil um leið að það verði enn betra. Til þess þurfum við meðal annars fleira fólk, með sín áhugamál, hugmyndir og þekkingu. Það er pláss fyrir fleiri og tekið vel á móti þeim. Fjöllin eru enn stór og brött og fólkið stundum furðulegt. Ég er hins vegar farin að kalla staðinn á milli fjallanna heima og fólkið vini mína. Höfundur er Vestfirðingur og verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar