Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar 23. október 2026 17:31 Í viðtali við Vísi 23. október segir Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, tímabært að endurskoða lögbundna sáttameðferð í málum þar sem ofbeldi hefur komið við sögu. Jafnframt segir hún embættið meðvitað um að gerendur geti nýtt umgengnismál til áframhaldandi stjórnunar. Þá vaknar óhjákvæmileg spurning: Ef vandinn er þekktur, hvers vegna hefur ekki verið brugðist við honum af meiri festu? Þegar ofbeldi er kallað ágreiningur hverfur ábyrgð gerandans Ágreiningur og ofbeldi eru ekki tvær hliðar á sama máli, heldur eðlisólík fyrirbæri. Ágreiningur felur í sér ólík sjónarmið eða hagsmuni sem aðilar geta leitast við að leysa með samræðum og málamiðlunum. Þvingandi stjórnun byggist hins vegar á valdaójafnvægi þar sem annar einstaklingur beitir ógnunum, ótta, eftirliti eða öðrum stjórnunaraðferðum til að skerða frelsi og sjálfræði hins. Þar er ekki um gagnkvæman samskiptavanda að ræða heldur kerfisbundna valdbeitingu. Þegar ofbeldi er skilgreint sem ágreiningur verður til fölsk mynd af sameiginlegri ábyrgð. Þolandinn er þá krafinn um samstarf við þann sem hefur beitt hann ofbeldi og tilraunir hans til að setja mörk geta verið túlkaðar sem ósveigjanleiki eða samstarfsleysi. Þannig færist athyglin frá hegðun gerandans yfir á viðbrögð þolandans. Þvingandi stjórnun lýkur heldur ekki endilega við sambúðarslit. Hún getur tekið á sig nýjar myndir þegar gerandinn missir beinan aðgang að þolandanum. Forsjár- og umgengnismál, endurteknar sáttameðferðir, ásakanir til barnaverndar og málaferli geta þá orðið vettvangur áframhaldandi stjórnunar. Með því að misnota úrræði stjórnsýslu og dómstóla getur gerandi viðhaldið áhrifum sínum á líf þolanda og barns, knúið fram samskipti og haldið þeim í viðvarandi varnarstöðu. Ofbeldið hefur þá ekki endilega stöðvast heldur breytt um birtingarmynd og getur haldið áfram með aðkomu þeirra stofnana sem eiga að tryggja vernd. Sýslumaður viðurkennir að ofbeldismál kalli á aðra nálgun. Samt er sáttameðferð samkvæmt 33. gr. a barnalaga almennt lögbundið skilyrði áður en tiltekin mál fara til úrlausnar. Aðskildir fundir afmá ekki valdaójafnvægið. Enn fremur bannar 48. gr. Istanbúlssamningsins skyldubundna sáttamiðlun í málum um þar sem saga er um ofbeldi. Spurningin er því ekki hvort hægt sé að hafa foreldra í sitt hvoru herberginu, heldur hvers vegna þolandi eigi yfirhöfuð að þurfa að gangast undir sáttaferli við þann sem hefur beitt hann ofbeldi. Stofnanir sem stjórnunartæki Sýslumaður viðurkennir að ofbeldismál kalli á aðra nálgun. Samt er sáttameðferð samkvæmt 33. gr. a barnalaga almennt lögbundið skilyrði áður en tiltekin mál fara til úrlausnar. Aðskildir fundir afmá ekki valdaójafnvægið. Enn fremur bannar 48. gr. Istanbúlssamningsins skyldubundna sáttamiðlun í málum um ofbeldi sem samningurinn nær til. Spurningin er því ekki hvort hægt sé að hafa foreldra í sitt hvoru herberginu, heldur hvers vegna þolandi eigi yfirhöfuð að þurfa að gangast undir sáttaferli við þann sem hefur beitt hann ofbeldi. Í þessu samhengi er sérstaklega varhugavert að túlka ítrekaða ásókn í umgengni saman við ást og umhyggju. Þegar málarekstur er notaður til að knýja fram samskipti eða viðhalda yfirráðum getur hann verið birtingarmynd þvingandi stjórnunar. Umhyggja verður að birtast í hegðun sem tekur mið af öryggi og hagsmunum barnsins.Umhyggja verður ekki metin út frá því hversu fast foreldri sækir rétt sinn, heldur hvernig hegðun þess samræmist öryggi, líðan og hagsmunum barnsins. Orðræða fagfólks getur einnig smættað ofbeldi. Í opinberri grein Lífs án ofbeldis er lýst að barni sem sagði frá ofbeldi föður hafi verið svarað að hann hefði „bara verið kjáni“. Samtökin gagnrýna jafnframt ráðleggingar um að „horfa til framtíðar“ og að gögnum um ofbeldi sé lýst sem „einhliða gagnaöflun móður“. Þegar reynsla barna er smættuð og verndandi viðbrögð foreldra tortryggð getur stofnanabundinn þolendaskaði orðið að framhaldi ofbeldisins. Meðvitund án aðgerða verndar engan Þegar þekkt er að réttarkerfið geti verið misnotað til áframhaldandi þvingandi stjórnunar verður kerfisbundin skráning ofbeldis grundvallarforsenda þess að hægt sé að greina vandann og bregðast við honum. Á árunum 2019–2023 var 2.694 málum vísað í sáttameðferð hjá sýslumanni. Embættið getur gert grein fyrir málafjölda og málalokum en ekki lagt fram heildstæða tölfræði um hversu mörg málanna vörðuðu ofbeldi. Þótt upplýsingar séu skráðar í einstök mál skortir yfirsýn yfir umfangið, endurtekin málaferli og hvernig ofbeldissaga hefur áhrif á málsmeðferð og niðurstöður. Hvernig á stofnun að meta hvort hún verndi börn og þolendur þegar hana skortir grundvallargögn um þá áhættu sem hún segist þekkja? Þessi staða er sérstaklega ámælisverð í ljósi þess að GREVIO, sérfræðinganefnd Evrópuráðsins, vakti árið 2022 athygli á alvarlegum veikleikum í framkvæmd forsjár- og umgengnismála á Íslandi, meðal annars varðandi skorts á sérþekkingu á ofbeldi, áhættumati og gagnasöfnun. Fjórum árum síðar er því ekki nóg að vísa til áfallamiðaðs verklags eða aukinnar meðvitundar. Embættið þarf að sýna fram á hvaða úrbætur hafa verið gerðar, hvernig þekking og hæfni starfsfólks er tryggð og hvort breytingarnar hafi skilað raunverulegri vernd. Án slíkrar eftirfylgni er hætta á að yfirlýsingar um fagmennsku verði fyrst og fremst vörn fyrir óbreyttu verklagi, fremur en grundvöllur nauðsynlegra umbóta. Hver ber ábyrgð þegar kerfið bregst? Lögin setja umgjörðina, en sýslumannsembættið, barnavernd og dómstólar bera hver um sig ábyrgð á eigin framkvæmd. Getur stofnun sem hefur sætt ítrekaðri gagnrýni og jafnframt varið eigin framkvæmd sjálf lagt trúverðugt mat á hvort sú framkvæmd hafi brugðist börnum og þolendum? Eða er einmitt þessi staða skýrasta röksemdin fyrir því að óháð úttekt sé nauðsynleg? Það þarf sjálfstæða úttekt á framkvæmd sáttameðferðar, skýra undanþágu frá sáttaskyldu í ofbeldismálum, sérhæft áhættumat og verklag sem greinir mögulega misnotkun stofnana til stjórnunar. Það dugar ekki að ætla að breyta lögum ef sama stofnanamenning gerir ofbeldi að ágreiningi, vernd að samstarfsleysi og stjórnunarhegðun að umhyggju. Ofbeldi verður ekki að ágreiningi þótt það fari í sáttameðferð. Þegar forsjár- og umgengniskerfið verður vettvangur áframhaldandi þvingandi stjórnunar er það ekki þolandinn sem á að sanna samstarfsvilja sinn. Það eru stofnanirnar sem verða að sýna fram á að framkvæmd þeirra tryggi öryggi barna og þolenda, í stað þess að viðhalda því valdaójafnvægi sem þeim ber að bregðast við. Höfundur er lokaársnemi í MA í félagsráðgjöf til starfsréttinda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar