Fótbolti

Stór­leiknum frestað vegna mót­mælanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ousmane Dembélé fagnar marki fyrir Paris Saint-Germain í sigri á Manchester City í Meistaradeildinni.
Ousmane Dembélé fagnar marki fyrir Paris Saint-Germain í sigri á Manchester City í Meistaradeildinni. EPA/ADAM VAUGHAN

Paris Saint-Germain átti að mæta Lyon á Parc des Princes-leikvanginum í frönsku deildinni á sunnudagskvöldið en Parísarlögreglan ákvað að seinka stórleiknum um einn sólarhring.

Búist er við að mótmælin í París færist aftur í aukana um helgina og því verður hægt að spila leikinn við rólegri aðstæður á mánudagskvöldið.

Ákvörðunin þýðir að leikurinn rekst á við Ballon d’Or-hátíðina, þar sem nokkrir leikmenn PSG eru tilnefndir til verðlauna. Ousmane Dembélé, leikmaður PSG, hlaut einnig verðlaunin sem besti knattspyrnumaður heims í fyrra.

Í fyrra missti PSG einnig af hátíðinni vegna frestaðs leiks sem fór fram á sama tíma.

PSG–Lyon er snemmbúinn úrslitaleikur deildarinnar í frönsku deildinni. Liðin tvö eru í fyrsta og öðru sæti deildarinnar.

Lyon er í fyrsta sætinu á markatölu en liðið hefur náð í fjórtán stig og skorað 13 mörk gegn fimm. Paris Saint-Germain er í öðru sæti með markatöluna 14-9. Paris FC, Lille og Mónakó eru öll líka með fjórtán stig en lakari markatölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×