Enski boltinn

Conte þver­neitar sögu­sögnum um samningsviðræður

Andri Broddason skrifar
Antonio Conte þjálfaði síðast Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni.
Antonio Conte þjálfaði síðast Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni. Ivan Romano/Getty Images

Antonio Conte hefur mikið verið orðaður við Manchester United en hann er ekki samningsbundinn neinu öðru liði. Hann birti þó á Instagram færslu þar sem hann þverneitar að hafa rætt við nokkurt félag, sem hægt er að gera sterklega ráð fyrir að sé Manchester United, og segir að hann muni velja lið sem honum finnst vera rétt.

„Nafnið mitt hefur verið nefnt í tengslum við nokkur félög, en eins og staðan er núna eru engar formlegar viðræður að eiga sér stað. Eftir dásamlegan og árangursríkan tíma sem stjóri Napoli, mun ég taka tímann sem ég þarf til þess að hugsa hvernig og hvenær ég sný aftur sem þjálfari. Þetta verður vönduð ákvörðun, sem ég mun gera þegar ég trúi því að skilyrðin séu rétt,“ skrifaði Conte á Instagram.

Færslan sem Antonio Conte birti á Instagram.antonioconte

Conte þjálfaði síðast Napoli þar sem hann vann ítölsku úrvalsdeildina á sínu fyrsta tímabili og ári seinna endaði hann í öðru sæti deildarinnar á eftir Inter Milan. Þrátt fyrir gott gengi þá hætti hann sem þjálfari félagsins og hefur ekki þjálfað síðan.

Sumt af hlutunum sem Conte hefur lesið lýsir miklum kröfum sem hann hefur ekki sett við nein félög.

„Ég hef lesið fréttir um fjárhagslegar kröfur og beiðni um taumlausa stjórn sem ég á að hafa gert við nefnd félög, ásamt lýsingum á því sem hefur verið lýst sem „sterkum persónuleika“. Þessi fréttaflutningur hefur engan grunn, þar sem það er enginn grunnur fyrir þessu mati.“

Conte útilokar þó ekki að líta á tilboð sem berast honum, svo lengi sem þau vekja áhuga hans.

„Ef raunhæft tækifæri gefst, mun það vera tíminn til þess að hefja viðræður við það félag og komast að samkomulagi um skilmála samningsins, með tilliti til þarfa beggja aðila og gæða og nálgunar sem einkenna mitt starf sem þjálfari.“

Að lokum biðlar hann til fólks að trúa ekki sögusögnum um að framtíð hans nema þær komi frá honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×