Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar 23. október 2026 11:02 Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins. Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til. Framsókn hefur opnað vefinn utreikningur.is, þar sem allt þetta klink og krónuklór er lagt saman. Tökum dæmi af hjónum á landsbyggðinni með tvö börn, 50 milljóna króna húsnæðislán og 35 þúsund ekna kílómetra á ári. Reiknivélin metur þennan reikning þeirra árið 2027 á um 281 þúsund krónur, rúmar 23 þúsund á mánuði. Þar af bætast um 102 þúsund við höfuðstól lánsins í formi verðbóta. Sömu hjón í Reykjavík, með sömu laun og sama lán, en aka minna, fá um 269 þúsund króna reikning. Munurinn liggur allur á vegum úti. Vegum sem ekki er búið að laga, þó nóg sé búið að finna upp af gjöldum til þess arna. Grundvallarstefnuskrá Framsóknar telur það sjálfsagðan rétt fólks að geta valið sér búsetu, og nefnir greiðar samgöngur meðal þess sem jafnar búsetuskilyrði. Gjald sem hækkar með hverjum kílómetra vinnur gegn þeim jöfnuði. Hér fyrir norðan er langt í vinnuna, í skólann og til læknis, hver kílómetri telur. Heimilissátt Framsóknar leggur til að krónutölugjöld, kílómetragjald og gjaldskrár ríkisstofnana hækki ekki umfram 2,5%. Með tillögum Framsóknar, ofan á boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, færi reikningur hjónanna á landsbyggðinni niður í um 95 þúsund krónur. Fjárlögin eru vissulega reiknuð í milljörðum, en þau eru borguð í auðskiljanlegum upphæðum, af fólki sem munar um krónurnar. Margt smátt gerir eitt stórt, og það gildir líka um hófsemi og nærgætni. Þegar ríki, sveitarfélög og atvinnulíf róa í sömu átt, skapast skilyrði til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Við náum bestum árangri fyrir fólkið í landinu með samvinnu ólíkra afla á grundvelli hófsemi og heiðarleika. Sú leið hefur sjaldan verið brýnni en nú. Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Líndal Húnaþing vestra Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins. Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til. Framsókn hefur opnað vefinn utreikningur.is, þar sem allt þetta klink og krónuklór er lagt saman. Tökum dæmi af hjónum á landsbyggðinni með tvö börn, 50 milljóna króna húsnæðislán og 35 þúsund ekna kílómetra á ári. Reiknivélin metur þennan reikning þeirra árið 2027 á um 281 þúsund krónur, rúmar 23 þúsund á mánuði. Þar af bætast um 102 þúsund við höfuðstól lánsins í formi verðbóta. Sömu hjón í Reykjavík, með sömu laun og sama lán, en aka minna, fá um 269 þúsund króna reikning. Munurinn liggur allur á vegum úti. Vegum sem ekki er búið að laga, þó nóg sé búið að finna upp af gjöldum til þess arna. Grundvallarstefnuskrá Framsóknar telur það sjálfsagðan rétt fólks að geta valið sér búsetu, og nefnir greiðar samgöngur meðal þess sem jafnar búsetuskilyrði. Gjald sem hækkar með hverjum kílómetra vinnur gegn þeim jöfnuði. Hér fyrir norðan er langt í vinnuna, í skólann og til læknis, hver kílómetri telur. Heimilissátt Framsóknar leggur til að krónutölugjöld, kílómetragjald og gjaldskrár ríkisstofnana hækki ekki umfram 2,5%. Með tillögum Framsóknar, ofan á boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, færi reikningur hjónanna á landsbyggðinni niður í um 95 þúsund krónur. Fjárlögin eru vissulega reiknuð í milljörðum, en þau eru borguð í auðskiljanlegum upphæðum, af fólki sem munar um krónurnar. Margt smátt gerir eitt stórt, og það gildir líka um hófsemi og nærgætni. Þegar ríki, sveitarfélög og atvinnulíf róa í sömu átt, skapast skilyrði til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Við náum bestum árangri fyrir fólkið í landinu með samvinnu ólíkra afla á grundvelli hófsemi og heiðarleika. Sú leið hefur sjaldan verið brýnni en nú. Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra.
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun