Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Ester Ósk Árnadóttir skrifar 22. október 2026 21:41 KA-menn unnu flottan sigur fyrir norðan í kvöld og ætla að vera með í baráttunni á toppnum í vetur. Vísir/Vilhelm KA vann Aftureldingu 32–28 í hröðum og skemmtilegum leik í KA-heimilinu í kvöld. Heimamenn voru sterkari á lokakaflanum og bundu enda á þriggja leikja sigurgöngu Mosfellinga í deildinni. Með sigrinum fór KA upp fyrir Aftureldingu í annað sætið. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og jafnt á flestum tölum. Afturelding komst í 1–2 en það reyndist eina forysta gestanna í leiknum. KA náði þriggja marka forskoti í stöðunni 7–4 en Mosfellingar svöruðu með þremur mörkum í röð. Heimamenn höfðu áfram frumkvæðið en náðu ekki að hrista gestina af sér og staðan var 15–15 í hálfleik. Svipað var uppi á teningnum framan af síðari hálfleik. KA náði tveggja til þriggja marka forskoti en Afturelding hélt sér inni í leiknum. Hart var barist, sóknirnar hraðar og hvorugt liðið gaf neitt eftir. KA tók leikhlé í stöðunni 24–22 þegar um tólf mínútur voru eftir og náði í kjölfarið loks að slíta gestina frá sér. Jens Bragi Bergþórsson skoraði tvívegis af línunni áður en Dagur Gautason kom heimamönnum fimm mörkum yfir úr hraðaupphlaupi, 27–22. Afturelding minnkaði muninn í tvö mörk, 28–26 en KA svaraði með mikilvægum mörkum frá Degi Árna Heimissyni og Bjarna Ófeigi Valdimarssyni. Gestirnir náðu ekki að brúa bilið og Andri Freyr Friðriksson innsiglaði 32–28 sigur KA með síðasta marki leiksins. Atvik leiksins Dagur Gautason sá um tilþrif leiksins á 25. mínútu. Ágúst Elí Björgvinsson sendi boltann fram völlinn á Dag sem tók við honum á lofti og skoraði áður en hann lenti. Glæsilegt mark sem kom KA í 14–12 og vakti mikinn fögnuð í stúkunni. Stjörnur og skúrkar Dagur Gautason var frábær í liði KA, skoraði níu mörk úr níu skotum og nýtti færin sín af miklu öryggi. Morten Linder átti einnig stóran þátt í sigrinum með níu stoðsendingum og fann félaga sína hvað eftir annað í góðum færum. Ágúst Elí Björgvinsson varði þá mikilvæg skot ekki síst þegar KA var að byggja upp forskot sitt í síðari hálfleik. Það er erfitt að benda á einn skúrk hjá Aftureldingu. Gestirnir héldu lengi vel í við KA en réðu illa við sóknarleik heimamanna á mikilvægum kafla í síðari hálfleik. Nokkur góð færi fóru jafnframt forgörðum þegar Mosfellingar þurftu mest á mörkunum að halda. Stemning og umgjörð Það var þéttsetið í KA-heimilinu og mikil stemning. Áhorfendur fengu hraðan og skemmtilegan leik og létu vel í sér heyra. Fögnuðurinn var mikill þegar lokaflautið gall. Dómarar Kári Garðarsson og Magnús Kári Jónsson dæmdu leikinn. Þrátt fyrir mikla baráttu var aðeins ein brottvísun í leiknum. Hún kom á 51. mínútu þegar Daði Jónsson hjá KA fékk tveggja mínútna brottvísun. Mestur hiti færðist í leikinn á 53. mínútu þegar flautað var á brot rétt áður en Bjarni Ófeigur skoraði. Markið taldi því ekki og KA-bekkurinn mótmælti kröftuglega og fékk áminningu. Bekkur Aftureldingar fékk sömuleiðis áminningu skömmu síðar. Olís-deild karla Handbolti KA Afturelding