Viðskipti innlent

Leigu­verð lækkar að raun­virði og ó­vissa á fast­eigna­markaði

Bjarki Sigurðsson skrifar
Leigumarkaður hefur kólnað undanfarið.
Leigumarkaður hefur kólnað undanfarið. Vísir/Vilhelm

Leiguverð heldur ekki í við verðbólgu samkvæmt nýrri greiningu HMS og leiguverð því að lækka að raunvirði. Þó virðast fleiri festast á leigumarkaði og mikil óvissa er framundan á fasteignamarkaði, meðal annars vegna vænts samdráttar í íbúðafjárfestingu. 

Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir október 2026. Þar segir að fasteignamarkaðurinn hafi verið daufur í lok sumars og þurfi að leita aftur til ársins 2014 til að finna jafnfáa þinglýsta kaupsamninga í ágústmánuði. Þó mátti greina nokkra viðspyrnu í september þó virknin að sé enn lítil miðað við síðustu ár. 

„Framboð nýrra íbúða á sölu hefur verið nokkuð stöðugt frá áramótum, þar sem dregið hefur úr uppbyggingu nýrra íbúða á sama tíma og minna er selt af þeim. Öðrum íbúðum á sölu fjölgar hins vegar ört á milli mánaða eftir því sem fasteignamarkaðurinn hefur kólnað,“ segir í tilkynningu á vef HMS. 

Fleiri festast á leigumarkaði

Leigumarkaðurinn ber einnig merki kólnunar þar sem leiguverð heldur ekki í við verðbólgu. Framboð leiguíbúða virðist hafa aukist síðustu misseri en þrátt fyrir það bendir leigumarkaðskönnun HMS til þess að fleiri séu að festast á leigumarkaði en áður. 

„Nýtt frumvarp um leigubremsu myndi takmarka reglubundnar leiguverðshækkanir á samningstíma við vísitölu neysluverðs og tíðni hækkana við tólfta hvern mánuð. Ýmsar undanþágur yrðu þó áfram til staðar í húsaleigulögum sem heimila breytingar á leigu vegna breyttra markaðsaðstæðna, rekstrarkostnaðar eða fjármagnskostnaðar,“ segir í tilkynningunni. 

Eigið fé fjölskyldna eykst

Lánamarkaðurinn var umfangsminni í ágúst en mánuðinn á undan og ásókn í verðtryggð lán eykst á ný. Fastir vextir eru enn allsráðandi líkt og þeir hafa verið frá vaxtadómunum svokölluðu í október 2025.

„Eigið fé fjölskyldna í fasteignum hefur að meðaltali aukist frá því í fyrra, þar sem vextir hafa hækkað og dregið hefur úr skuldsetningu. Þó er skuldsetning mismikil eftir fjölskyldugerðum og bera einstæðir foreldrar þyngstu skuldabyrðarnar,“ segir í tilkynningunni. 

Óvissa í framtíðarþróuninni

Byggingarmarkaðurinn hefur dregist saman þar sem fjármálafyrirtæki veita færri ný útlán til byggingarfyrirtækja og spá greiningardeildir allra bankanna samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár. Þær greinir þó á um framtíðarþróun íbúðafjárfestingar og því er mikil óvissa í þeim efnum.

„Stærðardreifing íbúða sem eru í byggingu er í samræmi við eftirspurn síðustu ára, en minnstu og stærstu íbúðirnar hafa selst betur en aðrar. Meirihluti óseldra nýrra íbúða er á stærðarbilinu 80-120 fermetrar og í stórum fjölbýlishúsum,“ segir í tilkynningunni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×