Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. október 2026 14:17 Þessi mynd af Akranesvelli var tekin í dag. Þarna er risahola í vítateignum. Ljóst er að ekki hefði dugað að moka yfir hana aftur og setja gras yfir. Völlurinn er skemmdur. vísir/aðsend Það virðist aldrei hafa verið raunhæft að spila fótbolta á Akranesvelli um helgina enda búið að grafa risaholur á völlinn.
Til stóð að leikur ÍA og Keflavíkur í lokaumferð Bestu deildar karla færi fram á vellinum um helgina. Hann hefur verið færður inn í Akraneshöllina. „Í fyrstu ætluðum við bara að taka holur utan við leikflötinn en síðan var það mikilvægt fyrir verkfræðistofuna að tekin yrðu líka sýni inni á vellinum til að fá betri niðurstöður um rúmmálið í jarðveginum undir vellinum. Á þessum tíma var völlurinn mjög blautur og þoldi illa að fá tæki inn á sig. Núna er hann óleikhæfur og þess vegna sóttum við um að spila inni í Akraneshöllinni,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA, við íþróttadeild. Eins og myndirnar með fréttinni sýna eru þetta engar smá holur á báðum vallarhelmingum. Þess utan má sjá stór hjólför í grasinu. KSÍ skammaði ÍA fyrir að fara í þessar framkvæmdir án samráðs og það fór augljóslega fyrir brjóstið á sambandinu að ÍA teldi sig geta fengið undanþágu til að leika í Akraneshöllinni án samráðs. Hér má sjá seinni stóru holuna á vellinum sem er á hinum vallarhelmingnum.vísir/aðsend „Rétt er að hér komi fram að mótanefnd KSÍ harmar þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við þessa framkvæmd, sérstaklega samráðsleysi við KSÍ og að engin tilraun hafi verið gerð til að lagfæra skemmdir í vellinum og gera hann leikhæfan. Afleiðingin er sú að völlurinn er óleikhæfur. Nefndin telur sig ekki eiga annan kost en að samþykkja undanþágu um að leika í Akraneshöll. Sú ákvörðun er ekki einróma. Með von um að undirbúningur við fyrirhugaðar framkvæmdir gangi sem best og nýr leikvöllur verði að veruleika,“ segir í bréfi KSÍ sem fótbolti.net birti. ÍA mun leggja gervigras á völlinn næsta vor og þarf að finna sér annan heimavöll á meðan framkvæmdir standa yfir næsta sumar. Svona var staðan á Akranesvelli í dag. Á þessu sögulega grasi verður ekki aftur spilaður fótbolti.vísir/aðsend
Fótbolti Besta deild karla ÍA Akranes Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Sjá meira