Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Andri Broddason skrifar 20. október 2026 21:05 Vitinha fagnar frábæru marki sínu í kvöld en hann kom PSG í 3-2 á 81. mínútu. EPA/MOHAMMED BADRA Evrópumeistarar Paris Saint-Germain unnu 4-2 sigur á Barcelona í stórleik kvöldsins í Meistaradeildinni í fótbolta en franska liðið varð þar með það fyrsta til að vinna Börsunga á þessari leiktíð. Það voru miklar væntingar gerðar til leiksins og útkoman var flottur sex marka fótboltaleikur. Désiré Doué kom PSG í 1-0 á 38. mínútu og lagði síðan upp mark fyrir Lucas Hernández sem kom PSG aftur í forystu á 72. mínútu. Bakvörðurinn Xavi Espart jafnaði í 1-1 á 55. mínútu eftir stoðsendingu Fermín López og flestir héldu að Barcelona væri að fá eitthvað út úr leiknum þegar Lamine Yamal jafnaði metin í 2-2 á 79. mínútu eftir laglegt einstaklingsframtak. Frakkarnir áttu hins vegar lokaorðið og tryggðu sér sigur með tveimur mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins. Það fyrra skoraði Vítinha með þrumuskoti á 81. mínútu og það síðara Fabián Ruiz eftir undirbúning Achraf Hakimi á 86. mínútu. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti FC Barcelona