Liverpool með fjögurra marka endur­komu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Liverpool fagna öðru marki Alexis Mac Allister í leiknum.
Leikmenn Liverpool fagna öðru marki Alexis Mac Allister í leiknum. EPA/ADAM VAUGHAN

Liverpool hélt sigurgöngu sinni áfram í Meistaradeildinni í kvöld en útlitið var ekki bjart þegar liðið lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik. Liverpool svaraði með fjórum mörkum og vann 4-3 sigur í miklum markaleik.

Argentínumaðurinn Alexis Mac Allister skoraði tvö mörk í kvöld, Ronald Araújo jafnaði metin rétt fyrir hálfleik og hinn ungi Rio Ngumoha átti frábæran leik á kantinum en hann gaf tvær stoðsendingar og skapaði mikinn usla.

Liverpool-liðið byrjaði leikinn skelfilega og gróf sér holu fyrir framan stuðningsmenn sína sem voru í áfalli eftir hálftíma leik. Þegar Liverpool fór loksins í gang keyrði liðið yfir spænsku gestina sem náðu þó að laga stöðuna í lokin og setja aftur spennu í þetta.

Virgil van Dijk færði Villarreal mark á silfurfati strax á fjórðu mínútu þegar misheppnaður skalli hans fór beint á Georges Mikautadze sem skoraði.

Sergi Cardona slapp síðan í gegn eftir skyndisókn og kom spænska liðinu í 2-0 á 29. mínútu.

Mac Allister minnkaði muninn með skalla eftir hornspyrnu á 36. mínútu og Ronald Araújo skallaði svo inn fyrirgjöf Rio Ngumoha á lokamínútu fyrri hálfleiksins.

Rio Ngumoha lagði svo upp annað mark Mac Allister á 65. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði varamaðurinn Florian Wirtz eftir sendingu frá Cody Gakpo. Þetta var fyrsta mark Þjóðverjans fyrir Liverpool síðan í apríl.

Leikmenn Villarreal gáfust ekki upp og settu aftur spennu í þetta með því að minnka muninn í 4-3.

Varnarmenn Liverpool sofnuðu á verðinum þegar boltinn kom fyrir á fjærstöngina þar sem Tani Oluwaseyi beið og skoraði þriðja mark Villarreal.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira