Sport

Tennispar skilur vegna á­hrifa stríðsins

Andri Broddason skrifar
Elina Svitolina og Gael Monfils hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir átta ára hjónaband.
Elina Svitolina og Gael Monfils hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir átta ára hjónaband. Sarah Stier/Getty Images

Tennisparið Elina Svitolina og Gael Monfils hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina. Ástæðan fyrir skilnaðinum er að eftir innrás Rússlands inn í Úkraínu hefur verið mikill óróleiki innan Svitolinu og hún þarf að stíga frá hjónabandinu til þess að finna hver hún er.

Svitolina tilkynnir þetta á Instagram-reikningi sínum en tekur fram að þeim þyki enn vænt um hvort annað og þau ætli að halda áfram að ala upp dóttur þeirra saman. Þau giftust árið 2018 og voru því gift í átta ár en dóttir þeirra kom í heiminn árið 2021 og er því aðeins fimm ára.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem staða Úkraínu hefur áhrif á Svitolinu en hún tók sér pásu frá tennisvellinum vegna áhrifanna sem stríðið hafði á hana.

„Allir vita hvað Úkraína skiptir mig miklu máli. Það sem ég hef sjaldan talað um er það sem stríðið hefur breytt mér að innan. Á síðasta ári, sagði ég að ég þyrfti að stíga frá tennisvellinum vegna þess að ég var ekki á réttum stað tilfinningalega. Í dag vil ég opna mig aðeins meira. Það sem þið sáuð ekki voru svefnlausu næturnar, efasemdirnar og tilfinningin að ég væri hægt og rólega að missa sjálfan mig,“ sagði Svitolina í Instagram-færslu sinni.

Svitolina er þessa stundina sjöunda á heimslistanum og hefur verið að spila vel upp á síðkastið. Á síðasta móti á WTA-mótaröðinni komst hún í 8-manna úrslit þar sem hún tapaði fyrir Bretanum Sonay Kartal.

Gael Monfils er nýlega búinn að leggja spaðann á hilluna en hann vann þrettán mót á hans ferli. Hann náði hæst að vera númer sex á heimslistanum en hann náði því fyrir tíu árum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×