Sport

Frá út tíma­bilið vegna blóð­tappa í lungum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hurts spilar ekki meira á leiktíðinni vegna blóðtappa.
Hurts spilar ekki meira á leiktíðinni vegna blóðtappa. Getty

Jalen Hurts, leikstjórnandi Philadelphia Eagles í NFL-deildinni, mun ekki spila meira með liðinu á leiktíðinni vegna blóðtappa í bæði útlimum og lungum.

Hurts meiddist á dögunum vegna blóðtappa í kálfa og búist við að meiðslin væru minniháttar. Í kjölfarið greindust hins vegar fleiri blóðtappar, bæði í útlimum en einnig í lungum sökum lungnablóðreks.

Hurts mun af þeim sökum vera á blóðþynnandi lyfjum næstu mánuði og má ekki taka þátt í æfingum og leikjum liðs síns á meðan hann jafnar sig. Samkvæmt yfirlýsingu frá Philadelphia Eagles er staða hans ekki sögð alvarleg, honum líði almennt vel og líkur á fullum bata góðar.

Eagles hafa byrjað leiktíðina illa og aðeins unnið tvo af fyrstu sex leikjum tímabilsins. Hurts mun ekki taka frekari þátt á þessari leiktíð.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×