Enski boltinn

Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu

Andri Broddason skrifar
Manchester United virðist ekki ætla að ná sama árangri og á síðasta tímabili.
Manchester United virðist ekki ætla að ná sama árangri og á síðasta tímabili. Samsett/Vísir

Ýmsir hafa sagt sína skoðun á Michael Carrick, þjálfara Manchester United, síðustu daga en gengi liðs hans hefur ekki verið frábært. Liðið er aðeins með sjö stig þegar sjö umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni en það er nægur tími til þess að bæta gengið.

Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, sagði frammistöðu liðsins gegn Leeds um helgina hafa verið betri en oft áður. Þrátt fyrir það gerði Manchester United 1-1 jafntefli við Leeds á útivelli sem gerir það að verkum að liðið hefur ekki unnið í sex leikjum í öllum keppnum.

Í Gary Neville hlaðvarpinu sagði hann að viðmið Manchester United væru lægri nú en áður og að frammistaða helgarinnar væri eitthvað til að byggja á. Markmið liðsins ætti að vera að enda í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tryggja sér Meistaradeildarsæti.

„Liðið má ekki enda utan efstu fimm sætanna því þá missir liðið af Meistaradeildinni. Þá getur liðið ekki endilega fengið leikmennina sem liðið vill vegna þess að þeir vilja spila í Meistaradeildinni og þú missir af peningnum sem þú færð fyrir að spila í Meistaradeildinni,“ sagði Neville og hefur áhyggjur af því ef Manchester United nær ekki að klifra hærra í deildinni.

Manchester United er núna í þrettánda sæti deildarinnar en Neville hefur ekki áhyggjur af því þar sem það er lítið búið af deildinni. Ef staða liðsins nær þó ekki að batna þá gæti Carrick verið í veseni.

„Staða liðsins þarf að breytast á næstu vikum. Leikurinn gegn Bournemouth er gríðarlega mikilvægur og leikurinn gegn Chelsea á útivelli. Allt fyrir neðan fimmta sæti er vonbrigði þar sem flestir voru að búast við að liðið myndi enda hærra fyrir tímabilið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×