Handbolti

Kær­kominn sigur KA/Þór

Aron Guðmundsson skrifar
Úr leik KA/Þór og Vals í fyrndinni
Úr leik KA/Þór og Vals í fyrndinni Vísir/Hulda Margrét

KA/Þór vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Olís deild kvenna í handbolta í dag þegar liðið hafði betur gegn Stjörnunni á heimavelli. Lokatölur 32-28 KA/Þór í vil.

Fyrir leik dagsins hafði KA/Þór tapað öllum fimm leikjum sínum til þessa í Olís deildinni.

Sigur dagsins því kærkominn í meira lagi en Lydía Gunnþórsdóttir fór mikinn í liði heimakvenna og skoraði tíu mörk. 

Með sigrinum lyftir KA/Þór sér upp í áttunda sæti deildarinnar og er nú komið á blað í deildinni. 

KA/Þór, HK og Stjarnan verma neðstu sæti deildarinnar öll með tvö stig eftir sex leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×