Innlent

Hand­tekinn fyrir að ausa fúk­yrðum yfir hóp fólks

Freyja Þórisdóttir skrifar
Í myndbandinu má sjá manninn hreyta misfallegum orðsendingum í gangandi vegfarendur en lögreglunni barst tilkynning um að hann væri ógnandi og sendi því fulltrúa á vettvang.
Í myndbandinu má sjá manninn hreyta misfallegum orðsendingum í gangandi vegfarendur en lögreglunni barst tilkynning um að hann væri ógnandi og sendi því fulltrúa á vettvang. Aðsend

Aðstoðar lögreglu var óskað vegna manns sem var með ógnandi tilburði neðst á Skólavörðustíg í gær en hann var að endingu handtekinn. Þá mátti á myndbandi heyra til hans öskra á fólk sem virtist vera að taka hann upp á símana sína.

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við blaðamann að lögreglunni hafi í gær verið gert viðvart um mann sem væri að veitast að fólki og sýna ógnandi hegðun í miðborginni.

Þá greinir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, frá því að laganna verðir hafi verið sendir á vettvang til að ræða við manninn. Hann hafi síðan verið handtekinn og fluttur á lögreglustöð eitt á Hverfisgötu þar sem hafi verið rætt við hann frekar.

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá augnablikið þegar lögreglufólkið bar að garði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×