Körfubolti

Jamil hjálpar ís­lenska lands­liðinu

Sindri Sverrisson skrifar
Jamil Abiad er kominn í þjálfarateymi landsliðsins.
Jamil Abiad er kominn í þjálfarateymi landsliðsins. Anton Brink/Vísir

Kanadíski körfuboltaþjálfarinn Jamil Abiad, þjálfari Vals í Bónus-deild kvenna, hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi íslenska kvennalandsliðsins.

Finninn Pekka Salminen verður því með Jamil og Daníel Andra Halldórsson sér til aðstoðar auk styrktarþjálfarans Arnórs Gauta Ragnarssonar.

Samningur Jamils sem aðstoðarlandsliðsþjálfari gildir út yfirstandandi forkeppni fyrir EuroBasket 2029 en forkeppninni lýkur í febrúar næstkomandi.

Jamil mun sömuleiðis þjálfa eitt af yngri landsliðum kvenna næsta sumar.

Jamil hefur verið aðalþjálfari kvennaliðs Vals síðustu tvö ár eftir að hafa áður verið aðstoðarþjálfari karlaliðs félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×