„Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 14. október 2026 07:31 Glódís fagnar sigrinum í leikslok. Vísir/Anton Brink Gærkvöldið verður án efa eftirminnilegt fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur. Ekki nóg með að Ísland hafi unnið 5-0 sigur á Króatíu heldur spilaði fyrirliðinn sinn 150. leik í íslensku landsliðstreyjunni.
Glódís Perla hefur reyndar oft haft meira að gera en í gærkvöld enda voru Stelpurnar okkar með algjöra yfirburði gegn króatíska liðinu. „Ég er gríðarlega stolt af því hvernig við mættum í þennan leik, fullur fókus og ekkert vanmat heldur bara einbeittar á hvað við gátum bætt og hvað við gátum gert betur til þess að ná enn þá betri frammistöðu. Þetta var fagmannlega gert myndi ég segja,“ sagði Glódís Perla eftir leik en Ísland mætti til leiks með góða forystu í einvíginu eftir 4-0 sigur í fyrri leiknum ytra. Ída María Hermannsdóttir og Katla Tryggvadóttir komu báðar inn í byrjunarliðið fyrir leikinn í gær og skoruðu. Þá kom Diljá Ýr Zomers inn sem varamaður og skoraði tvö mörk og varamennirnir Birta Georgsdóttir og Líf Joostdóttir Van Bemmel áttu báðar þátt í mörkum Diljár. Glódís Perla fagnar hér Diljá Ýr Zomers sem kom inn af bekknum í dag og skoraði tvö mörk.Vísir/Anton Brink „Við viljum vera með lið og hóp sem virkar þannig að þegar við skiptum þá styrkjumst við og verðum betri. Það gera allar gríðarlega vel í dag sem koma inn og algjört hrós á allan hópinn.“ „Þessar nýju þær eru allar opnar og það hefur gengið ótrúlega vel að þjappa hópnum saman í þessu verkefni. Ég er heppin að vera fyrirliði yfir svona frábærum hóp,“ segir Glódís Perla. „Þær verða jafn mótiveraðar og við“ Ísland féll úr leik í umspili fyrir HM fyrir fjórum árum gegn Portúgal og mun fá tækifæri til hefndar nú því liðin munu mætast í tveimur leikjum í lok nóvember og byrjun desember þar sem sigurvegarinn fer á HM í Brasilíu. „Fyrir okkur sem spiluðum þann leik þá verður þetta alltaf pínu sárt. Þetta er eitthvað sem við verðum að nota sem hvatningu en þetta verður allt öðruvísi leikur. Þetta eru tveir leikir, úti og heima, og við erum með allt öðruvísi lið og þær líka. Þetta verða úrslitaleikir fyrir bæði lið en ég er viss um að þær verða jafn mótiveraðar og við.“ Ísland mun leika seinni leikinn á heimavelli og fer hann fram þann 5. desember þegar aðstæður hér á landi geta verið erfiðar. „Ég held að mörgum liðum finnist ekkert gaman að koma til Íslands. Það er alltaf rigning og rok hérna, reyndar ekki í dag, en ég veit að Króatarnir hættu á æfingu í gær þegar kom smá haglél. Þetta verður bara að koma í ljós, vonandi fyllum við bara völlinn og gerum þetta saman.“ Glódís Perla lék sinn 150. A-landsleik og hélt áfram að bæta leikjametið. Hún fékk gjöf fyrir leik sem Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ afhenti henni.vísir/Anton „Reyni að gefa af mér til næstu kynslóða“ Glódís Perla náði merkum áfanga í gær þegar hún spilaði sinn 150. landsleik. Hún er landsleikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi en segir að hún hafi ekki mikið pælt í áfanganum fyrir leik. „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu og ég var ekkert að pæla í þessu. Við vorum með fulla einbeitingu á því sem við vorum að fara að gera en auðvitað er þetta stórt og ég er gríðarlega stolt af því hvað ég hef fengið að spila lengi fyrir íslenska landsliðið.“ Hetjurnar sem komu Íslandi á fyrsta stórmótið, EM 2009, voru heiðraðar fyrir leik í gær.vísir/Anton Fyrir leikinn í gær gekk landslið ásamt starfsfólki, sem tryggði Íslandi sæti á stórmóti í fyrsta sinn, inn á völlinn á undan stelpunum okkar og var fagnað af áhorfendum í stúkunni. „Það var gaman að labba út á völl í dag. Þær náttúrulega byrjuðu þessa vegferð sem við erum á og ég lít gríðarlega mikið upp til þeirra. Ég fékk þann heiður að spila með mörgum þeirra og lærði af bestu leikmönnum Íslands og reyni að gefa af mér núna í næstu kynslóðir.“
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Tengdar fréttir „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok. 13. október 2026 20:27 Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir. 13. október 2026 16:45 Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Ísland tryggði sér í kvöld örugglega sæti í úrslitaeinvígi umspils um sæti á Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu á næsta ári. Ísland vann 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli og mætir að öllum líkindum Portúgal í einvígi um sæti á HM. 13. október 2026 19:47 Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Fleiri fréttir KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ Sjá meira
„Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok. 13. október 2026 20:27
Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir. 13. október 2026 16:45
Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Ísland tryggði sér í kvöld örugglega sæti í úrslitaeinvígi umspils um sæti á Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu á næsta ári. Ísland vann 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli og mætir að öllum líkindum Portúgal í einvígi um sæti á HM. 13. október 2026 19:47