Enski boltinn

Með á­skorun fyrir sjóð­heitan Andra Lucas

Aron Guðmundsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen fagnar marki sínu með Blackburn um nýafstaðna helgi
Andri Lucas Guðjohnsen fagnar marki sínu með Blackburn um nýafstaðna helgi Vísir/Getty

Tony Mowbray, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, skorar á framherja sinn, íslenska landsliðsmanninn Andra Lucas Guðjohnsen, að rjúfa 20 marka múrinn á tímabilinu. Andri hefur verið iðinn við kolann upp á síðkastið.

Íslendingurinn kom Blackburn Rovers á bragðið um nýliðna helgi í 2-1 sigri gegn Cardiff City á heimavelli í ensku B-deildinni.

Andri Lucas er nú búinn að skora fjögur mörk í átta leikjum fyrir Blackburn í B-deildinni og að auki skoraði hann tvö mörk og lagði upp eitt í nýafstöðnum landsleikjaglugga með íslenska landsliðinu.

Tony Mowbray skoraði á Andra Guðjohnsen að skora 20 mörk á tímabilinu eftir að mark hans kom Blackburn á bragðið í verðskulduðum 2-1 sigri á Cardiff.

Íslenski framherjinn Andri Guðjohnsen átti gjöfult landsleikjahlé þar sem hann skoraði í tveimur af fjórum leikjum landsliðsins, og í fyrsta byrjunarliðsleik sínum fyrir Blackburn í rúman mánuð hélt hann áfram á sömu braut þegar hann braut ísinn á 28. mínútu með snyrtilegri afgreiðslu – fimmta mark hans fyrir félagið á tímabilinu.

Mowbray var himinlifandi með mark Andra og skoraði á hann að bæta við fleirum.

„Hann er nokkuð fjölhæfur framherji sem er líkamlega sterkur og getur haldið boltanum, unnið skallabolta og framlengt okkar sóknir. Hann veit upp á hár hvar markið er og finnur sig vel milli línanna,“ sagði Mowbray eftir sigurinn gegn Cardiff og bætti við:

„Hvert lið þarf framherja sem skilar mörkum sem færa okkur sigra. Hann verður að stefna að því að ná 20 mörkum á þessu tímabili og vonandi fleirum. Ég er ánægður með hann og himinlifandi með að hann skoraði aftur. Hann skoraði nokkur mörk snemma í landsleikjahléinu, skoraði aftur núna og skoraði líka fyrir okkur snemma á tímabilinu. Mér líkar vel við Andra, hann er virkilega góður knattspyrnumaður, dæmigerður framherji sem veit hvar markið er.“

Framherjar nærast á mörkum og vonandi heldur Andri Lucas áfram að raða þeim inn. Blackburn vermir 13. sæti ensku B-deildarinnar sem stendur og er ekki langt frá umspilssæti þegar aðeins níu umferðir eru liðnar af deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×