Fótbolti

Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe

Andri Broddason skrifar
Jose Mourinho er ekki sáttur með umfjöllun um Kylian Mbappe.
Jose Mourinho er ekki sáttur með umfjöllun um Kylian Mbappe. Angel Martinez/Getty Images

Jose Mourinho kom leikmönnum sínum til varnar á blaðamannafundi fyrir leik Real Madrid og Villareal í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Kylian Mbappe hefur verið gagnrýndur af fjölmiðlum en Mourinho veit að umfjöllun um hann hafi verið ýkt.

Kylian Mbappe hefur verið gagnrýndur fyrir að taka ekki fótboltaferlinum sínum nógu alvarlega þegar hann sást á skemmistað í París og að hjóla í Sviss. Hann var ekki með franska landsliðinu í landsleikjaglugganum vegna meiðsla í hné.

Eftir greiningu á meiðslunum byrjaði hann að æfa í vikunni í Madríd en þrátt fyrir það var hann gagnrýndur fyrir hegðun sína. Mourinho hefur enga þolinmæði fyrir leikmönnum sem haga sér ekki en hann hefur engar áhyggjur af Mbappe þar sem hann hefur ekki gert neitt af sér.

„Fyrir mér þarf leikmaður að vera leikmaður allan sólarhringinn. Allt mikilvægt eða neikvætt sem hann gerir í einkalífinu sínu hefur afleiðingar. Leikmaður getur gert mistök, en hann þarf að sýna ábyrgð,“ sagði Mourinho og tók upp hanskann fyrir sínum leikmönnum og þá sérstaklega Mbappe.

Á blaðamannafundinum útskýrði Mourinho að fjölmiðlar hefðu stórlega ýkt það sem Mbappe gerði á meðan hann var meiddur. Skemmtistaðurinn sem hann átti að hafa verið á var einkasamkvæmi tengt tískuvikunni í París og hjólatúrinn hans í Sviss var milli húsa á hótelsvæðinu sem hann gisti á.

Real Madrid er í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar þegar sjö umferðir eru búnar og er liðið sex stigum á eftir erkifjendum liðsins í Barcelona sem eru með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×