Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. október 2026 21:08 Álftanes vann öruggan sigur í kvöld. Vísir/Diego Álftanes vann öruggan 34 stiga sigur er liðið tók á móti Hetti í 1. umferð Bónus-deildar karla í kvöld, 111-77. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum og þeir sýndu mátt sinn og megin í kvöld. Miðað við spá formanna, fyrirliða og þjálfara bjuggust líklega flestir við nokkuð öruggum sigri Álftnesinga. Hattarmenn bitu þó frá sér í upphafi leiks og í fyrsta leikhluta var svo gott sem jafnt á öllum tölum. Í það minnsta var jafnt á öllum tölum þegar fyrsta leikhluta lauk, en staðan var 26-26 að honum loknum. Heimamenn tóku þó völdin snemma í öðrum leikhluta og juku forskot sitt jafnt og þétt eftir að Sigurður Pétursson stal boltanum af gestunum og keyrði upp í eina troðslu. Það virtist gefa heimamönnum aukinn kraft og þeir náðu mest 20 stiga forskoti fyrir hálfleikshléið. Gestirnir náðu aðeins að laga stöðuna fyrir hlé og minnkuðu muninn niður í 14 stig, staðan 57-43 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Síðari hálfleikur var svo beint framhald af öðrum leikhluta. Gestirnir í Hetti gátu varla keypt sér stig á töfluna og í þau fáu skipti sem liðið setti boltann ofan í körfuna í þriðja leikhluta komu stigin oftar en ekki af vítalínunni. Heimamenn gengu á lagið og náðu mest 20 stiga forskoti í leikhlutanum, en gestirnir náðu að klóra örlítið í bakkann og staðan var 81-58 þegar komið var að lokaleikhlutanum. Álftnesingar héldu áfram að auka forskot sitt jafnt og þétt í fjórða leikhluta og í raun var þetta fljótlega orðið formsatriði fyrir heimamenn að klára þennan leik. Álftanes vann að lokum öruggan 34 stiga sigur, 111-77, og óhætt er að segja að liðið fari vel af stað í deildarkeppninni. Það sama er þó ekki hægt að segja um Hattarmenn, sem þurfa að finna leiðir til að koma sér af stað í næsta leik. Atvik leiksins Stuldur og troðsla að hætti Sigurðar Péturssonar í upphafi annars leikhluta kveikti heldur betur í heimamönnum. Þetta var atvik sem virtist gefa Álftnesingum aukinn kraft og liðið byggði upp gott forskot eftir þetta. Stjörnur og skúrkar Álftnesingar virðast hafa unnið heimavinnuna sína vel áður en þeir sóttu Lettann Martin Laksa. Laksa skilaði 21 stigi fyrir liðið í kvöld og sýndi hvers hann er megnugur. Luka Gasic skoraði einnig 21 stig fyrir liðið og Sigurður Pétursson skoraði 17. Marquis Jackson var atkvæðamestur í liði gestanna með 20 stig. Dómararnir Gunnlaugur Briem, Jakob Árni Ísleifsson og Bjarni Rúnar Lárusson fengu ekki erfiðasta verkefni vetrarins í kvöld. Leikur sem endar með rúmlega þrjátíu stiga sigri annars liðsins kallar oftast ekki á mikinn hita, en þeir félagar komust vel frá sínu. Stemning og umgjörð Það var gríðarlega vel mætt í Kaldalónshöllina á Álftanesi í kvöld og létu áhorfendur vel í sér heyra. Í raun var ekki ósvipuð mæting á leikinn eins og um væri að ræða leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins, en þetta gefur góð fyrirheit fyrir Álftnesinga. Umgjörðin var svo til fyrirmyndar. Borgarar á grillinu og plötusnúður sem hélt uppi stuðinu. Allt upp á tíu. Bónus-deild karla UMF Álftanes Höttur Körfubolti