23? Björg Magnúsdóttir skrifar 8. október 2026 09:00 Í Stjórnarskránni segir í 1. málsgrein 78. greinar: Sveitarfélög skulu sjálf ráða málefnum sínum - eftir því sem lög ákveða.Vissulega er ákveðin mótsögn í greininni; sveitarfélög skulu sjálf ráða sínum málum - þegar Alþingi er búið að leggja línur. En hvar er línan? Hvar sleppir ákvarðanavaldi Alþingis á málefnum sveitarstjórna og hvar taka sjálfstæðar sveitarstjórnir við, sem veita alla nærþjónustu og eru í stöðugu sambandi við umbjóðendur sína gegnum leik- og grunnskóla, íþróttafélög, búsetukjarna, félagsmiðstöðvar og þar fram eftir götum. Hvernig eru sveitarstjórnir nógu góðar til að skipuleggja alla sína stjórnsýslu, launastrúktúr og fjárhagsáætlun - en hafa ekki vald yfir því lykilatriði hversu margir kjörnir fulltrúarnir eru? Borgarstjórn samþykkti áskorun á þingið Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í vikunni að skora á Alþingi, þar sem nú stendur yfir endurskoðun á sveitarstjórnarlögum, að gefa sveitarstjórnum meira svigrúm til að ákveða sjálf kjörna fulltrúa útfrá eigin forsendum og staðbundnum þörfum. Einsog lögin líta út núna er lögbundinn fjöldi kjörinna fulltrúa eftirfarandi: 1. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru undir 2.000 skulu vera 5-7 aðalmenn. 2. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 2.000-9.999 skulu vera 7-11 aðalmenn. 3. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 10.000-49.999 skulu vera 11-15 aðalmenn. 4. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 50.000-99.999 skulu vera 15-23 aðalmenn. 5. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 100 þúsund eða fleiri skulu vera 23-31 aðalmenn. Ýmsar leiðir að markinu Reykjavík er eina sveitarfélagið sem fellur undir síðasta flokkinn og ekkert sveitarfélag er í 4. flokki þó Kópavogur nálgist það. Ein leið að lagabreytingu væri að fella út þessa lögbundnu flokka og hafa svigrúm sveitarstjórna meira. Önnur leið væri að sameina flokk 4 og 5, þar sem kjörnir fulltrúar í stærri sveitarfélögum væru á bilinu 15-31. 30 manna hópur Borgarfulltrúum fjölgaði frá 15 upp í 23 í sveitarstjórnarkosningum 2018 sem er 53 prósent fjölgun á einu bretti - og hefur sú mikla fjölgun sætt gagnrýni síðan. Reykjavík bætti um betur og setti fyrsta varaborgarfulltrúa allra flokka á launaskrá. Þannig eru í dag 30 manns á launum fyrst og fremst við að sitja í borgarstjórn Reykjavíkur. Bara borgarfulltrúar hrósa fjölguninni Nú geri ég alls ekki lítið úr því starfi sem við borgarfulltrúar sinnum. Ég segi með sanni að það er í ótal horn að líta og ég skil vel að pólitík geri fólk gráhært í mesta lagi á einu kjörtímabili, það er strax byrjað að gerast hjá mér. En ég verð líka að viðurkenna að ég hef ekki heyrt neinn nema sitjandi borgarfulltrúa tala um að þessi mikla fjölgun hafi verið til góðs - og hef ég samt spurt allmarga Reykvíkinga. Kerfin eiga að þjóna íbúum Í stóru myndinni vitum við það öll að kerfin okkar, hvort sem litið er til ríkis eða sveitarfélaga, hafa tilhneigingu til þess að blása út og stækka með tilheyrandi fjölgun á opinberum starfsmönnum og pólitískum fulltrúum. Skal ekki dregið úr mikilvægi þess að hafa hér öfluga stjórnsýslu en stjórnsýslan og kerfin þurfa fyrst og fremst að vera skilvirk og virka vel fyrir íbúana. Það er mín skoðun að við sem höfum það hlutverk að sýsla með peninga annarra eigum í hvívetna að horfa til þess að hafa kerfin og rammann eins einfaldan og við getum án þess að tapa gæðum við að þjóna samfélaginu. Svo vitum við líka öll hvað gerist þegar kokkum í eldhúsinu fjölgar. Innivistuð borgarstjórn En það eru ýmsar hliðar á málinu og hægt er að hugsa borgarstjórn á allskonar vegu. Hvað skiptir borgarbúa máli? Væri til gagns að hafa meiri áherslu á að fulltrúar allra hverfa sitji í borgarstjórn? Hvernig tryggjum við lýðræðislegan vilja án þess að flækja kerfið út í hið óendanlega? Borgarstjórn núna er um 30 manna hópur sem er í fullri vinnu inni í kerfinu. Önnur sveitarfélög eru með minni hóp í fullri vinnu og stærra hlutfall í hlutastarfi sem hefur þá tengsl inn í aðra geira til dæmis atvinnulíf eða skólasamfélag samhliða því að sitja í sveitarstjórn. Mér finnst umhugsunarefni hvort við höfum innivistað borgarstjórn Reykjavíkur óþarflega mikið og misst á móti tengingar út í samfélagið í borginni. Viðreisn vill fækka borgarfulltrúum Það er skoðun okkar í Viðreisn að vel færi á því að fækka borgarfulltrúum og einfalda hlutina í þeirri stjórnsýslueiningu rétt einsog við erum að gera annars staðar í borgarkerfinu. Hver hin gullna tala kjörinna fulltrúa er í Reykjavík er stærri umræða sem þyrfti að nást breið sátt um en áskorun borgarstjórnar til þingsins snýst fyrst og síðast um það að Reykjavík eigi að hafa meiri aðkomu að þeirri ákvörðun. Höfundur er forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar