Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Í Stjórnarskránni segir í 1. málsgrein 78. greinar: Sveitarfélög skulu sjálf ráða málefnum sínum - eftir því sem lög ákveða.Vissulega er ákveðin mótsögn í greininni; sveitarfélög skulu sjálf ráða sínum málum - þegar Alþingi er búið að leggja línur.

En hvar er línan?

Hvar sleppir ákvarðanavaldi Alþingis á málefnum sveitarstjórna og hvar taka sjálfstæðar sveitarstjórnir við, sem veita alla nærþjónustu og eru í stöðugu sambandi við umbjóðendur sína gegnum leik- og grunnskóla, íþróttafélög, búsetukjarna, félagsmiðstöðvar og þar fram eftir götum. Hvernig eru sveitarstjórnir nógu góðar til að skipuleggja alla sína stjórnsýslu, launastrúktúr og fjárhagsáætlun - en hafa ekki vald yfir því lykilatriði hversu margir kjörnir fulltrúarnir eru?

Borgarstjórn samþykkti áskorun á þingið

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í vikunni að skora á Alþingi, þar sem nú stendur yfir endurskoðun á sveitarstjórnarlögum, að gefa sveitarstjórnum meira svigrúm til að ákveða sjálf kjörna fulltrúa útfrá eigin forsendum og staðbundnum þörfum.

Einsog lögin líta út núna er lögbundinn fjöldi kjörinna fulltrúa eftirfarandi:

  • 1. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru undir 2.000 skulu vera 5-7 aðalmenn.
  • 2. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 2.000-9.999 skulu vera 7-11 aðalmenn.
  • 3. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 10.000-49.999 skulu vera 11-15 aðalmenn.
  • 4. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 50.000-99.999 skulu vera 15-23 aðalmenn.
  • 5. Flokkur. Kjörnir fulltrúar þar sem íbúar eru 100 þúsund eða fleiri skulu vera 23-31 aðalmenn.

Ýmsar leiðir að markinu

Reykjavík er eina sveitarfélagið sem fellur undir síðasta flokkinn og ekkert sveitarfélag er í 4. flokki þó Kópavogur nálgist það. Ein leið að lagabreytingu væri að fella út þessa lögbundnu flokka og hafa svigrúm sveitarstjórna meira. Önnur leið væri að sameina flokk 4 og 5, þar sem kjörnir fulltrúar í stærri sveitarfélögum væru á bilinu 15-31.

30 manna hópur

Borgarfulltrúum fjölgaði frá 15 upp í 23 í sveitarstjórnarkosningum 2018 sem er 53 prósent fjölgun á einu bretti - og hefur sú mikla fjölgun sætt gagnrýni síðan. Reykjavík bætti um betur og setti fyrsta varaborgarfulltrúa allra flokka á launaskrá. Þannig eru í dag 30 manns á launum fyrst og fremst við að sitja í borgarstjórn Reykjavíkur.

Bara borgarfulltrúar hrósa fjölguninni 

Nú geri ég alls ekki lítið úr því starfi sem við borgarfulltrúar sinnum. Ég segi með sanni að það er í ótal horn að líta og ég skil vel að pólitík geri fólk gráhært í mesta lagi á einu kjörtímabili, það er strax byrjað að gerast hjá mér. En ég verð líka að viðurkenna að ég hef ekki heyrt neinn nema sitjandi borgarfulltrúa tala um að þessi mikla fjölgun hafi verið til góðs - og hef ég samt spurt allmarga Reykvíkinga.

Kerfin eiga að þjóna íbúum

Í stóru myndinni vitum við það öll að kerfin okkar, hvort sem litið er til ríkis eða sveitarfélaga, hafa tilhneigingu til þess að blása út og stækka með tilheyrandi fjölgun á opinberum starfsmönnum og pólitískum fulltrúum. Skal ekki dregið úr mikilvægi þess að hafa hér öfluga stjórnsýslu en stjórnsýslan og kerfin þurfa fyrst og fremst að vera skilvirk og virka vel fyrir íbúana. Það er mín skoðun að við sem höfum það hlutverk að sýsla með peninga annarra eigum í hvívetna að horfa til þess að hafa kerfin og rammann eins einfaldan og við getum án þess að tapa gæðum við að þjóna samfélaginu. Svo vitum við líka öll hvað gerist þegar kokkum í eldhúsinu fjölgar.

Innivistuð borgarstjórn

En það eru ýmsar hliðar á málinu og hægt er að hugsa borgarstjórn á allskonar vegu. Hvað skiptir borgarbúa máli? Væri til gagns að hafa meiri áherslu á að fulltrúar allra hverfa sitji í borgarstjórn? Hvernig tryggjum við lýðræðislegan vilja án þess að flækja kerfið út í hið óendanlega? Borgarstjórn núna er um 30 manna hópur sem er í fullri vinnu inni í kerfinu. Önnur sveitarfélög eru með minni hóp í fullri vinnu og stærra hlutfall í hlutastarfi sem hefur þá tengsl inn í aðra geira til dæmis atvinnulíf eða skólasamfélag samhliða því að sitja í sveitarstjórn. Mér finnst umhugsunarefni hvort við höfum innivistað borgarstjórn Reykjavíkur óþarflega mikið og misst á móti tengingar út í samfélagið í borginni.

Viðreisn vill fækka borgarfulltrúum

Það er skoðun okkar í Viðreisn að vel færi á því að fækka borgarfulltrúum og einfalda hlutina í þeirri stjórnsýslueiningu rétt einsog við erum að gera annars staðar í borgarkerfinu.

Hver hin gullna tala kjörinna fulltrúa er í Reykjavík er stærri umræða sem þyrfti að nást breið sátt um en áskorun borgarstjórnar til þingsins snýst fyrst og síðast um það að Reykjavík eigi að hafa meiri aðkomu að þeirri ákvörðun.

Höfundur er forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×