Skoðun

RÚV: hvað með okkur?

Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar

Kæra fjölmiðlafólk,

takk.

Takk fyrir að gera þætti um fólk með þroskahömlun.

Það er gert mjög sjaldan.

Fyrir helgi fjallaði útvarpsþátturinn Þetta helst á Rás 1 um sjálfsákvörðunarrétt fólks með þroskahömlun.

Við hlustuðum á þáttinn ykkar og tókum eftir að þið töluðuð ekki við neinn nema sérfræðinga og foreldra.

Við erum tilbúin

Ég var að spá hvort þið gætuð líka gert þætti þar sem þið talið við fatlaða einstaklinga. Þið gætuð til dæmis spjallað við fólk sem er farið að búa eitt eða með öðrum. Það væri gaman að heyra hvað frelsi þau búa við.

Við erum tilbúin að vera með í umræðunni.

Eru þið tilbúin að hafa okkur með?

Ég þekki fólk

Ef þið eruð að spá að gera annan þátt um sjálfsákvörðunarréttinn okkar þá erum við til í að koma í viðtal. Okkur finnst svolítið ójafnt að þið látið annað fólk tala fyrir okkar hönd. Við getum sagt ykkur frá hvernig það er að lifa sjálfstæðu lífi.

Ég þekki fólk sem býr í íbúðakjörnum, sambýlum og í sér íbúðum. Ég þekki fólk sem lifir sjálfstæðu lífi með aðstoð. Það væri gaman að heyra sögur frá því fólki og kannski hafa aðstoðarfólk með.

Ég hvet ykkur að horfa á myndböndin: Dagur í mínu lífi, sem Átak hefur verið að gera. Þar geti þið séð hvað við erum að meina.

Myndböndin eru á samfélagsmiðlum Átaks.

Ekkert um okkur, án okkar!

Við Átak félags fólk með þroskahömlun höfum verið að berjast um að vera sýnileg og fá að tala fyrir okkur sjálf síðan árið 1993.

Ekki tala fyrir okkar hönd

Við viljum ekki að aðrir tali fyrir okkar hönd án þess spyrja hvað okkur finnst. Við vitum svarið best.

Það sem þið sögðuð í þáttunum er ekki rétt. Við erum sérfræðingar í okkar málum. Við þurfum ekki að fara nám til tala fyrir okkur sjálf. Við erum sérfræðingar og við vitum best hvað við getum sagt.

Við veljum ekki heimili, við veljum ekki hvar við eigum heima. En við getum gert okkar eigin draumaheimili. Heimili sem okkur líður best á. Við veljum hvað við eldum í matinn, þó það sé óhollt eða hollt. Samt má aðeins benda okkur á. Það er hægt að spyrja “ertu viss?” en ekki segja: “eigum við ekki hafa fisk?”

Við erum fullorðið fólk, við ráðum sjálf hvort við viljum hafa fisk í matinn eða ekki.

Höfundur er formaður Átaks félags fólks með þroskahömlun.




Skoðun

Sjá meira


×