Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Valur Páll Eiríksson skrifar 11. september 2026 21:06 Gunnar Róbertsson skoraði 17 mörk í ótrúlegum 87 marka leik. Vísir/Anton Brink Fram lagði Val í ótrúlegum leik, 47-40, í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Fram deilir toppsætinu með KA sem lagði Víking.
Íslandsmeistarar Vals komust 1-0 yfir í fyrstu sókn leiksins gegn Fram en það var í eina skiptið sem liðið leiddi í leiknum. Fram komst fljótlega yfir og náði mest fimm marka forystu í sérlega hröðum og skemmtilegum fyrri hálfleik. Munurinn var þrjú mörk í hálfleik, 21-18 fyrir Fram. Enn jók Fram forskotið eftir hlé og gestirnir héldu Valsmönnum í seilingarfjarlægð allan leikinn. Ótrúlegum 87 marka leik lauk með 47-40 sigri Framara á Hlíðarenda. Með sigrinum fer Fram að hlið KA á toppi deildarinnar með fullt hús eftir tvo leiki en valur er með tvö stig. Ungstirnið Gunnar Róbertsson skoraði hvorki meira né minna en 17 mörk fyrir Val í leiknum og það aðeins úr 19 skotum. Ekki nóg með það heldur gaf Gunnar ellefu stoðsendingar að auki. Hjá Fram skoraði Dagur Fannar Möller tíu mörk úr tíu skotum af línunni og Max Emil Stenlund skoraði einnig tíu úr skyttunni. Komust 9-1 yfir en unnu aðeins með einu Víkingur leitaði sinna fyrstu stiga eftir tap í fyrsta leik en KA gat viðhaldið fullkominni byrjun sinni er liðin mættust í Virkinu við Safamýri. Segja má að byrjun leiksins hafi verið skrautleg. KA skoraði níu af fyrstu tíu mörkum leiksins og leiddu því 9-1 eftir tólf mínútna leik. Víkingur svaraði með fjórum mörkum í röð til að laga stöðuna aðeins og lokuðu vörninni betur. Munurinn var aðeins þrjú mörk í hálfleik, 12-9 fyrir gestina að norðan. KA hélt nokkurra marka forystu gott sem allan síðari hálfleikinn og fátt sem benti til þess að Víkingar sköpuðu einhverja spennu af viti. Munurinn var að endingu aðeins eitt mark en KA hélt forystunni til loka og Víkingur minnkaði muninn í 26-25 á lokasekúndunni. KA er því með fullt hús eftir tvo leiki á toppi deildarinnar en Víkingur leitar fyrsta sigursins enn. Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Dagur Gautason voru markahæstir hjá KA með fimm mörk hvor, Sigurður Páll Matthíasson skoraði sjö mörk af línunni hjá Víkingi en Gunnar Hrafn Pálsson sex. Upplýsingar um leikina eru fengnar af HBStatz.
Olís-deild karla Valur Fram KA Víkingur Reykjavík Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Sjá meira