Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Hjörvar Ólafsson skrifar 4. september 2026 21:46 Valur_FH Valur-FH mættust í 3 leik úrslitaeinvígisins í Olísdeildinni í handbolta. Valur - FH Anton/Vísir FH bar sigurorð af Stjörnunni, 38-31, í leik liðanna í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld. Heimamenn hófu leikinn af miklum krafti og voru komnir 5-1 yfir eftir rúmlega fimm mínútna leik. Vörn FH var firnasterk frá upphafi til enda leiksins og þar fyrir aftan var Jón Þórarinn Þorsteinsson í miklum ham. Sóknarleikur FH gekk eins og vel smurð vél og um leið og liðið fann veikleika á Stjörnuvörninni var hamrað á það heita járn aftur og aftur. Til þess að bæta gráu ofan á svart hjá Stjörnunni missti liðið Tóka Friðriksson og Tandra Má Konráðsson af velli þar sem þeim var vísað af velli með rauðu spjaldi í fyrri hálfleik. Stjörnumenn komu þó grimmir inn í seinni hálfleikinn og gestirnir náðu að minnka muninn í tvö mörk, 22-20, en þá hertu FH-ingar aftur tökin í varnarleik sínum og flæðið í sóknarleiknum varð betra. Niðurstaðan var öruggur sjö marka sigur FH en lokatölur urðu 38-31 heimamönnum í vil. Olís-deild karla FH Stjarnan