Viðskipti innlent

Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum

Árni Sæberg skrifar
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Vísir/Ívar Fannar

Samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu eru sértækir skattar sem lagðir eru á íslenska viðskiptabanka rúmlega fimmfalt hærri en sértækir skattar sem lagðir eru á bankar í öðrum löndum Vestur-Evrópu og þrefalt hærri en þar sem skattarnir eru næst hæstir. Verði af fyrirhugaðri skattahækkun á íslensk fjármálafyrirtæki hækki hlutfallið enn frekar og Ísland fjarlægist Evrópu í vaxandi mæli.

Í fréttatilkynningu þess efnis frá SFF segir að í greiningunni komi fram að Ísland sé eina ríki Vestur-Evrópu sem leggi í senn sérstaka viðbótarskatta á skuldir, hagnað og laun fjármálafyrirtækja umfram aðrar atvinnugreinar. 

Hér að neðan má sjá graf sem sýnir sértæka bankaskatta í löndum Vestur-Evrópu. Rétt er að nefna að á súlunni sem sýnir Ísland er einnig áætlun miðað við hækkun bankaskatta upp á tvo, fjóra og sex milljarða króna. Hækkun bankaskatta hefur verið boðuð en ekkert liggur fyrir um hversu mikil hún verður.

Greiningin dragi fram að í öðrum löndum í Vestur-Evrópu, sem yfir höfuð leggja sértæka skatta á banka, séu skattstofnarnir einn eða tveir. Ísland sé því eina ríkið úr þeim hópi þar sem sértækir skattstofnar eru þrír.

Full þörf sé á að endurskoða boðaða hækkun

Haft er eftir Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SFF, að greiningin sýni að full þörf sé á að áform stjórnvalda um fyrirhugaða skattahækkun verði endurhugsuð.

„Þrátt fyrir smæð landsins erum við búin að búa okkur til mjög íþyngjandi og óþarflega flókna umgjörð í alþjóðlegu samhengi. Þá voru skattarnir upphaflega að verulegu leyti hugsaðir sem tímabundnir. Í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem stjórnvöld gáfu út árið 2018 voru hinir háu sértæku skattar sagðir hluti af svokölluðu Íslandsálagi. Þá myndaðist breið samstaða um að það fyrirkomulag væri þjóðhagslega óheppilegt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Seðlabanki Evrópu hafa einnig varað samanburðarlönd okkar við hugmyndum um aukna sértæka skattheimtu á banka sem þó hafa verið tímabundnar og mun lægri en íslensku bankarnir greiða árlega.“

Hún hafi skilning á því markmiði stjórnvalda að skila af sér hallalausum fjárlögum.

„Það skiptir hins vegar máli að valin leið að því markmiði valdi sem minnstum þjóðhagslegum skaða. Stjórnvöld hafa enn ekki útskýrt hvernig þessi aðgerð uppfylli það markmið miðað við aðra valkosti þegar kemur að tekjum eða útgjöldum.“

Muni skekkja samkeppnishæfni

Þetta eigi sérlega við þegar horft er til annarra markmið stjórnvalda um bætt lífskjör, aukna atvinnuvegafjárfestingu, umbætur á húsnæðismarkaði og að laða að erlenda fjárfesta.

„Með þessari skattlagningu eru þau í raun að vinna gegn öllum ofangreindum markmiðum. Þá mun aukin skattbyrði skekkja samkeppnishæfni Íslands enn frekar og hætt við að ófyrirsjánleiki við breytingar á skattaumhverfi muni fæla frá erlenda fjárfesta. Afar mikilvægt er að efla samkeppnishæfni Íslands og hin mikla skattlagning á íslenska banka vinnur einnig gegn því. Það er kominn tími til að endurskoða þessa þrjá skattstofna í heild sinni, hvaða fyrirkomulag á skattheimtu er best til þess fallið að valda minnstum skaða og styðja við önnur markmið stjórnvalda.“

57 krónur af hverjum hundrað renni til ríkisins

Loks er haft eftir Heiðrúnu að einnig þurfi að horfa til þess að ríkið sé stærsti hluthafinn í bankakerfinu.

„Ríkið á þegar um 40% af viðskiptabönkunum í gegnum Landsbankann og leggur þar að auki 6% viðbótartekjuskatt á fjármálafyrirtæki ofan á hefðbundinn 20% tekjuskatt. Af hverjum 100 krónum sem viðskiptabankarnir hagnast um eftir skatta aukast tekjur ríkissjóðs að jafnaði um 57 krónur vegna greiðslu bankanna á tekjuskatti, viðbótartekjuskatti og arðgreiðslna frá Landsbankanum. Þetta hlutfall er langt umfram það sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Við þetta bætast ótekjutengdir skattar og gjöld sem bankarnir greiða til ríkisins, þar á meðal hinir tveir sértæku bankaskattarnir.“


Tengdar fréttir

Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts

Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×