Viðskipti innlent

Bensín­verð hækkar aftur á morgun

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eflaust fara margir að fylla á bílinn í dag og geta þannig sparað sér nokkrar krónur.
Eflaust fara margir að fylla á bílinn í dag og geta þannig sparað sér nokkrar krónur. Vísir/Vilhelm

Virðisaukaskattur á bensín hækkar aftur á morgun úr 11 prósentum í 24 prósent og þar með bensínverðið.

Virðisaukaskattur á bensín og dísil var í maí lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent út sumarið eða til 31. ágúst samkvæmt tímabundinni heimild sem gefin var í lögum sem samþykkt voru á Alþingi í maí. Aðgerðin var hluti aðgerðapakka sem ríkisstjórnin tilkynnti um apríl gegn verðbólgu.

Samkeppniseftirlitinu var í kjölfarið falið að fylgjast með því að lækkunin skilaði sér að fullu til neytenda. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins, sem gefið var út í byrjun júlí, kom fram að ekki væri hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hefði í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði. Þar kom einnig fram að ýmsum spurningum væri enn ósvarað. Einhver olíufélög hafi hækkað verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar.

Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, mátti eftir virðisaukaskattslækkunina sjá að verð hefði lækkað eftir virðisaukaskattsbreytinguna um 26 til 27 krónur lítrinn á bensíni og dísil um 30 til 32 krónur.

Þá var ódýrasti lítrinn af bensíni hjá Costco þar sem hann kostaði 198,3 krónur en þar þarf meðlimakort til að kaupa bensín. Á almennum bensínstöðvum var ódýrasti lítrinn hjá Orkunni þar sem hann kostar 202,3 krónur. Hjá Atlantsolíu var hann á 202,4 krónur.

Í dag er lítrinn, samkvæmt sömu síðu, hjá Costco á 191,1 krónu og á 201 krónu hjá Orkunni. Hjá Atlantsolíu er lítrinn á 201,2 krónur og 201,3 hjá ÓB. Hjá N1 er lítrinn víða á 202 krónur en svo er verðið annað ef skoðað er á landsbyggðinni. Til dæmis er lítrinn á 216 krónur hjá Orkunni í Stykkishólmi og 225,3 hjá ÓB á Ísafirði.

Lítrinn af dísil er ódýrastur hjá Costco á 224,3 krónur og svo á 234,3 krónur hjá Orkunni og 234,4 hjá Atlantsolíu.


Tengdar fréttir

Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Hún vísar gagnrýni vegna fjölgunar opinberra starfsmanna til fyrirhugaðs aðhalds í ríkisfjármálum.

Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri?

Donald Trump hefur heitið því að beita klerkastjórnina í Íran enn harðari efnahagsaðgerðum og þvinga Írani þannig til uppgjafar, þar sem beinn hernaður virðist ekki ætla að virka. Þá segist forsetinn ætla að einangra Íran með því að beita ríki sem eiga í viðskiptum við klerkastjórnina einnig refsiaðgerðum.

Segir efna­hags­málin og verðbólguna að þróast í rétta átt

Forsætisráðherra vísar því á bug að stjórnvöld hafi látið áhyggjur verkalýðshreyfingarinnar vegna mögulegs forsendubrests kjarasamninga eins og vind um eyru þjóta. ASÍ og SA verði að koma sér saman um hvers konar aðgerðir þau vilji sjá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×