Viðskipti innlent

Sýn leggur niður sjón­varps­fréttir

Jakob Bjarnar skrifar
Kvöldfréttirnar á Sýn í kvöld verða þær síðustu.
Kvöldfréttirnar á Sýn í kvöld verða þær síðustu. Vísir/Arnar

Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á SÝN. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forstjóra fyrirtækisins. Jafnframt verður hætt framleiðslu og útsendingu á Íslandi í dag.

Í tilkynningu sem var send starfsfólki kom fram að störfum hjá Sýn yrði fækkað, einkum meðal starfsfólks sem kæmi að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi.

Ákvörðunin er sögð tekin í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn muni því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil.

Þá segir að fréttastofa Sýnar mun áfram sinna fréttaþjónustu af fagmennsku og þróa miðlun frétta í takt við breyttar neysluvenjur landsmanna. Markmiðið er að styrkja fréttaþjónustu Sýnar á Vísi og Bylgjunni og tryggja um leið grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.Vísir/Vilhelm

Vísir er einn vinsælasti innlendi vefmiðill landsins og um 170.000 manns á aldrinum 12–80 ára hlusta á útvarpsstöðvar Sýnar í hverri viku.*

Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu sjónvarpsfrétta hjá félaginu. Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum fjölmiðlamarkaði undanfarin ár. Fréttaneysla hefur færst í auknum mæli frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla og samhliða því hefur tekjugrunnur innlendra fjölmiðla veikst. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann 51% auglýsingafjár á Íslandi til alþjóðlegra tæknirisa árið 2024. Þetta hefur gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Tillögur stjórnvalda hafa ekki nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta þannig að þær geti breytt niðurstöðunni.

Sýn færir því starfsfólki sem verður fyrir áhrifum af þessum breytingum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt, faglegt og mikilvægt framlag í þágu félagsins og íslenskrar fjölmiðlunar.

Í tilkynningunni er vitnað í Herdísi Dröfn Fjaldsted, forstjóra Sýnar, sem segir sjónvarpsfréttir hafi verið mikilvægur hluti starfsemi Sýnar og forvera félagsins nú í fjóra áratugi.

„Þar hefur fjölbreyttur hópur framúrskarandi fréttamanna, framleiðslufólks og annars starfsfólks unnið mikilvægt starf í þágu almennings og íslensks samfélags. Við erum afar stolt af þeirri sögu og þakklát öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg.

Ákvörðunin er erfið, ekki síst vegna áhrifanna á starfsfólkið okkar, en hún er nauðsynleg. Rekstur sjónvarpsfrétta hefur verið ósjálfbær um nokkurt skeið og við berum ábyrgð á því að bregðast við þeirri stöðu. Þótt þessum kafla í sögu Sýnar ljúki er framlag fréttastofunnar til íslenskrar fjölmiðlasögu óumdeilt og mun standa eftir. Sýn mun hér eftir sem hingað til kappkosta að miðla vandaðri fréttaumfjöllun á einum sterkustu miðlum landsins, Vísi og á Bylgjunni. Þar liggja spennandi tækifæri til að gera enn betur.“

Fyrirvari: Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×