Viðskipti innlent

Sýn+ verður líka línu­leg sjón­varps­stöð

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Áskrifendur geta áfram horft á efni á streymiveitunni Sýn+.
Áskrifendur geta áfram horft á efni á streymiveitunni Sýn+.

Frá og með 26. ágúst verður Sýn+ í loftinu sem línuleg sjónvarpsstöð. Rásin mun sýna nýjasta og vinsælasta efni streymisveitunnar Sýn+. Sjónvarpsstöðin Sýn heldur áfram sínu striki í opinni dagskrá.

Breytingin er liður í því að auka þjónustuna við áskrifendur SÝN+ en margir kunna að meta þægindin sem fylgja því að leyfa dagskránni að ráða för og njóta kvöldstundar yfir nýjasta efninu, upp á gamla mátann, segir í tilkynningu.

Í opnunardagskránni verður íslenskt efni í öndvegi, þar á meðal Kviss, Hvar er best að búa?, Golfarinn og Viltu finna milljón?

Erlent efni fái einnig veglegan sess. Þar má meðal annars nefna fjórðu þáttaröðina af Traitors UK, sem hefur farið sigurför um heiminn, lokaþáttaröð Grantchester og náttúrulífsþáttaröðina Surviving Earth.

„Áskrifendur okkar hafa aldrei haft meira efni til að velja úr og einmitt þess vegna er valið sjálft farið að verða tímafrek vinna. Það sem við gerum núna er að létta áskrifendum lífið með möguleikanum á að kveikja á SÝN+ rásinni og það nýjasta og besta er þegar í gangi,“ er haft eftir Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur, framkvæmdastjóra miðla hjá Sýn.

Vísir er í eigu Sýnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×