Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 16:32 Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, var eini nefndarmaður peningastefnunefndar sem vildi halda stýrivöxtum óbreyttum í ágúst. Vilhelm Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, var eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi ekki hækka stýrivexti í ágúst. Hann taldi að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og að áhrif hárra vaxta væru farin að koma skýrt fram í hagkerfinu.
Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndar sem birt var í dag. Peningastefnunefnd ákvað 19. ágúst að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósentum í átta prósent. Vísir greindi frá því þá að fjórir nefndarmenn hefðu stutt hækkunina en einn viljað halda vöxtum óbreyttum. Ekki kom hins vegar fram í yfirlýsingunni hver hefði verið á móti hækkuninni. Fundargerðin leiðir nú í ljós að það var Tómas. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri lagði til að vextir yrðu hækkaðir og Þórarinn G. Pétursson, Herdís Steingrímsdóttir og Ásgerður Ósk Pétursdóttir studdu tillöguna. Tómas greiddi einn atkvæði gegn henni. Taldi áhrif vaxtanna farin að sjást Tómas sagði að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og að það hefði miðlast vel yfir í markaðsvexti og verðbólguvæntingar. Hann taldi áhrif aðhaldsins jafnframt farin að sjást skýrt í einkaneyslu og á vinnumarkaði. Þá væru umsvif í byggingariðnaði farin að gefa eftir. Af þeim sökum taldi hann rétt að halda vöxtum óbreyttum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri og Flóki Halldórsson á fundi Seðlabankans. Tómas, fyrir miðju, var einn fimm nefndarmanna peningastefnunefndar sem vildi ekki hækka stýrivexti í ágúst.Vilhelm Tómas taldi jafnframt að hægt væri að bregðast við á næsta fundi nefndarinnar í október ef fram kæmu vísbendingar um frekari áhrif olíuverðshækkana á verðbólgu, til dæmis í launaþróun. Meirihlutinn óttaðist þráláta verðbólgu Hin fjögur í nefndinni töldu hins vegar tilefni til frekari hækkunar. Verðbólga væri enn langt yfir markmiði, verðbólguvæntingar háar og hætta á að kostnaðarhækkanir leiddu til frekari verðhækkana. Möguleg endurskoðun kjarasamninga síðar á árinu var einnig nefnd sem áhættuþáttur. Ákvörðunin var þriðja vaxtahækkun Seðlabankans í röð. Innherji fjallaði ítarlega um ákvörðunina og breyttar verðbólguhorfur bankans þegar hún var kynnt. Á kynningarfundi sama dag kallaði Ásgeir eftir auknu aðhaldi frá bæði hinu opinbera og vinnumarkaðnum og sagði að aðilar vinnumarkaðarins gætu meðal annars stuðlað að lægri vöxtum með því að fresta umsömdum launahækkunum. Um þau ummæli var fjallað hér á Vísi. Í maí hafði nefndin einnig hækkað vexti um 0,25 prósentustig, úr 7,5 í 7,75 prósent. Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar verður kynnt 7. október.
Seðlabankinn Efnahagsmál Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira