Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Freyja Þórisdóttir skrifar 30. ágúst 2026 22:09 Nemandi leitar að skólatöskunni sinni í hrúgu sem dregin var upp úr leðjunni sem fylgdi nýlegum skyndiflóðum. Myndin er ekki úr skólanum sem fjallað var um í fréttinni. AP Tugir skólabygginga voru eyðilagðar og skoluðust burt þegar skyndiflóð og skriður ruddust niður fjalladali í Nepal og Tíbet þann 26. ágúst en þúsunda er enn þá saknað og tala látinna fer hækkandi. Skólastjóri í Nepal rýmdi skólann og skipaði um níu hundruð börnum að færa sig á hærra svæði örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni.
Rajendra Dawadi, skólastjóri Tribhuvan Trishuli-skólans í Nuwakot, skipaði nemendum að fara á hærra svæði örfáum mínútum áður en mannskætt skyndiflóð jafnaði skólabygginguna við jörðu. Hann hafði þá fengið viðvaranir frá fólki sem var á svæðum ofar í dalnum um umfang flóðsins sem stefndi á þau. Mínútuspursmál að þau lifðu af Fjallað hefur verið um björgunina í fjölda miðla en í viðtali við blaðamann breska ríkisútvarpsins (BBC) staðfesti Dawadi að hann hafi ákveðið að grípa strax til rýmingar en um eitt þúsund og sex hundruð nemendur stunda nám í skólanum. „Jafnvel þótt flóðið hefði ekki komið, þá hefði það bara verið einn dagur af kennslu,“ er haft eftir honum í umfjöllun BBC. Hann hafi einnig lýst því hvernig hann fylgdist með heimavistarbyggingu, um hundrað metra frá ánni, hverfa í vatnsflaumnum á meðan hann skipaði krökkunum að færa sig ofar. „Ef við hefðum tekið ákvörðunina tíu mínútum seinna, þá gætum við öll, bæði nemendur og ég, ekki talað við ykkur í dag“ Haft er eftir einum nemanda að ákvörðun Dawadis hefði bjargað lífi þeirra og að hún, hin sextán ára gamla Yunisha, og vinir hennar hefðu sloppið naumlega við það að láta lífið í flóðinu. Fóru blessunarlega burt í hádeginu Þá lýsti hún því hvernig börnin hlupu upp drullugan stíg til að komast undan þegar vatn og brak flæddu yfir bæinn. Í Dhading, einu af þeim svæðum sem urðu verst úti í flóðunum, lifði hópur skólabarna hamfarirnar af þegar þau yfirgáfu kennslustofuna sína til að fara í hádegismat, er fram kemur í frétt BBC. Meira en þrjú þúsund og sjö hundruð manns hafi verið bjargað í Nepal hingað til en í yfirlýsingu sem var gefin út af yfirvöldum í dag hafi sagt að ekki hefði náðst í ríflega tvö þúsund og fimm hundruð manns, þar af fimm hundruð níutíu og tvo útlendinga. Það færði uppfærða tölu látinna upp í sjö hundruð, áttatíu og einn.
Nepal Náttúruhamfarir Tíbet Eldgos og jarðhræringar Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira