Serbía - Ís­land 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason þarf að láta til sín taka í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason þarf að láta til sín taka í kvöld. vísir/Anton

Ísland tapaði 102-73 á útivelli gegn Serbíu í fyrsta leik milliriðilsins í undankeppni HM. Strákarnir okkar byrjuðu af fítonskrafti en fljótt fjaraði undan, þrátt fyrir að Nikola Jokic hafi ekki náð sér á strik.

Þetta var fyrsti leikur Íslands á þessu stigi undankeppninnar en þrjú efstu lið milliriðilsins munu fara á HM 2027.

Ísland spilar næst heimaleik við Tyrkland í Laugardalshöll á mánudagskvöld. Litáen, Ítalía, Tyrkland og Bosnía/Hersegóvína eru einnig í milliriðlinum.

Stöðuna má sjá hér að neðan.

Standings provided by Sofascore

Löngu fyrir leik kvöldsins var ljóst að Ísland myndi eiga á brattann að sækja í Serbíu en strákarnir okkar byrjuðu leikinn af miklum krafti.

Kristinn Pálsson setti þristinn í fyrstu sókn Íslands og gaf tóninn. Jón Axel Guðmundsson keyrði svo á körfuna í næstu sókn og Ísland tók fimm stiga forystu gegn stigalausum Serbum, sem voru snöggir að svara.

Heimamenn skutu samt mjög illa í fyrsta leikhluta og ekki hjálpaði þeim hversu slakur Nikola Jokic var í byrjun leiks.

Tryggvi Hlinason lokaði algjörlega á hann og það tók Jokic tæpt korter að koma stigum á töfluna. Hinumegin tróð Tryggvi á Jókerinn af miklum krafti, serbneskum stuðningsmönnum til lítillar skemmtunar.

Elvar Már Friðriksson fór fullkomnlega af stað og Serbarnir gátu ekki stoppað hann nema að brjóta. Á meðan sýndi Martin Hermannsson snilldartakta, dansaði í gegnum vörnina og gaf Íslandi tveggja stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Staðan þá 25-27.

Serbar tóku við sér í öðrum leikhluta og sjóðhitnuðu fyrir aftan þriggja stiga línuna. Þrír þristar í röð skiluðu sér ofan í, áður en einn klikkaði en sá næsti söng líka í netinu.

Staðan eftir annan leikhluta var orðin 52-42 og þó Ísland hafi náð að halda aðeins í Serbíu í þriðja leikhluta áttu heimamenn eftir að vinna stórsigur.

Íslandi gekk verr og verr að hægja á Serbíu eftir því sem líða fór á. Munurinn var enn bara níu stig eftir þriðja leikhluta, 70-61, en Serbarnir settu upp algjöra stórsýningu í fjórða leikhluta. 

Sérlega sárt var að sjá Serbíu taka þessi endalausu sóknarfráköst. Heimamenn enduðu með fleiri sóknarfráköst (20) en Ísland með varnarfráköst (19). 

Serbneskir stuðningsmenn fengu allavega eitthvað fyrir peninginn, liðið sýndi og sannaði að það er eitt besta körfuboltalandslið heims og vann á endanum 102-73 sigur.

Atvik leiksins

13 mínútur, 45 sekúndur höfðu liðið af leiknum og fjögur skot höfðu farið upp í loft, þegar Nikola Jokic náði loksins að setja stig á töfluna.

Hann lauk leik með 6 stig, 13 fráköst og 6 stoðsendingar.

Stjörnur og skúrkar

Fyrrnefnt þríeyki Íslands; Martin, Elvar og Tryggvi, átti fínasta leik. Tryggvi stóð virkilega vel í Jokic varnarlega og verðskuldar verðlaun sem maður leiksins í íslenska liðinu.

Skúrkur kvöldsins er klárlega Nikola Tanaskovic, sá setti fjóra þrista úr fjórum skotum. Einhvern veginn alltaf á versta tíma fyrir Ísland. Þreytandi góð skytta.

Dómarar

Luis Castillo, Valentin Oliot og Zdenko Tomasovic frá Spáni, Frakklandi og Slóvakíu.

Fínasta frammistaða hjá þeim. Fengu tvö atriði til að skoða í endursýningu, möguleg tæknivilla og síðan óíþróttamannsleg villa. Ekkert dæmt og rétt ákvörðun í báðum tilfellum. Kristinn Pálsson fékk samt aðeins á kjammann, en ekkert sérlega fast.

Stemning og umgjörð

Þökk sé Tryggva Hlinasyni þá var hljótt í höllinni í Serbíu. Nikola Jokic náði sér aldrei á strik og þá slaknaði verulega á stemningunni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira