Körfubolti

„Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“

Andri Broddason skrifar
Craig Pedersen veit að hann á erfitt verkefni fyrir höndum gegn Nikola Jokic og félögum í Serbíu.
Craig Pedersen veit að hann á erfitt verkefni fyrir höndum gegn Nikola Jokic og félögum í Serbíu. Samsett/Vísir

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er komið áfram í undankeppni heimsmeistaramótsins. Liðið mætir Serbíu og Tyrklandi í þessum glugga og eru bæði liðin gríðarlega sterk.

Martin Hermannsson er ánægður með að vera mættur aftur með vinum sínum í landsliðinu eftir gott sumarfrí.

Martin Hermannsson er einn af lykilmönnum íslenska liðsins.Vísir / Anton Brink

„Ákveðin tilhlökkun að koma og hitta strákana þó að tímapunkturinn sé smá skrítinn. Menn eru að byrja á undirbúningstímabili og margir hverjir búnir að vera góðir við sig í sumarfríinu. Þetta verða tveir mjög erfiðir leikir og við áttum okkur á því að við erum að fara í erfitt verkefni. Liðið er bara búið að vinna fyrir þessu að spila gegn bestu þjóðum heims.“

Íslenska liðið mætir Serbíu í kvöld á útivelli og Tyrklandi á heimavelli eftir helgi á, mánudaginn. Bæði liðin eru gríðarlega sterk en íslenska liðið mun finna leiðir til að máta sig við stóru liðin.

„Þetta eru tvær af sterkustu körfuboltaþjóðum í heimi, með marga af bestu körfuboltamönnum í heimi. Það verður gaman að máta sig við þá og sjá hvar við stöndum. Það eru fáir að fara að tippa á okkur í þessum leikjum en vonandi eigum við tvær góðar frammistöður og sjáum hvert það tekur okkur,“ segir Martin Hermannsson.

Mætum einum besta leikmanni heims

Nikola Jokic er búinn að vera einn besti leikmaður NBA-deildarinnar síðustu ár og verður hann hluti af serbneska liðinu. Craig Pedersen þjálfari Íslands veit að þrátt fyrir að Jokic sé góður þá má ekki öll orka liðsins fara í hann. Fleiri leikmenn Serbíu eru hættulegir.

„Auðvitað reynum við eitthvað en ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum, en við munum reyna það sem við getum,“ sagði Craig Pedersen en hann vill ekki eyða allri orkunni í þennan eina leikmann Serbíu.

„Hann er ekki einn, Serbía er með tólf frábæra leikmenn. Ef við setjum þrjá menn að dekka Jokic þá geta hinir auðveldlega skorað stig. Þetta er ekki eins manns lið en auðvitað er hann frábær leikmaður sem getur gert allt. Það verður spennandi að keppa gegn besta leikmanni heims.“

Tyrkland enn ósigrað

Seinni leikur Íslands er gegn Tyrklandi en hann verður spilaður í Laugardalshöllinni á mánudaginn. Tyrkland verður ekki auðveldur leikur þar sem tyrkneska liðið vann það serbneska í báðum leikjum undankeppninnar og hefur unnið alla sína leiki.

Ísland og Tyrkland mættust síðast í febrúar árið 2025, þá einnig í Laugardalshöllinni. Ísland vann þann leik 83-71 og getur endurtekið leikinn með góðum stuðningi.

„Stuðningurinn sem við höfum fengið síðustu leiki hefur verið frábær og hann hjálpar leikmönnunum virkilega. En í staðinn þurfum við að koma með mikla orku inn á völlinn til að fá áhorfendur með. Tyrkneska liðið er gott og eru leikmenn liðsins með mikil gæði svo við fáum vonandi frábæran leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×