Körfubolti

Haukar fá risa­vaxinn liðs­auka

Sindri Sverrisson skrifar
Dominykas Milka handsalar samning sinn við Hauka sem greinilega ætla sér sæti í Bónus-deildinni.
Dominykas Milka handsalar samning sinn við Hauka sem greinilega ætla sér sæti í Bónus-deildinni. Haukar

Haukar ætla sér greinilega stóra hluti í 1. deild karla í körfubolta í vetur því þeir hafa klófest miðherjann stóra og sterka Dominykas Milka.

Milka er körfuboltaáhugafólki að góðu kunnur eftir að hafa gert góða hluti í Bónus-deildinni síðustu ár. Hann gerir samning til tveggja ára við Hauka.

„Það er frábært að fá Milka til okkar. Hann færir liðinu styrk, gæði og reynslu sem okkur vantaði. Hann mun taka liðið á hærra stig engin spurning,“ segir Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka, á Facebook-síðu félagsins.

Milka hefur spilað sjö tímabil á Íslandi og var síðast í herbúðum Njarðvíkur. Þar áður var hann hjá Keflavík.

Njarðvíkingar kvöddu Milka fyrr í sumar en hann hafði þá spilað fyrir félagið í þrjú ár. Á síðasta tímabili var Milka með 14,2 stig að meðaltali í leik í Bónus-deildinni, tók 8,4 fráköst og gaf 3,3 stoðsendingar, fyrir lið sem endaði í 8. sæti deildarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×