Fótbolti

Bein út­sending: Dregið í Meistara­deild Evrópu

Sindri Sverrisson skrifar
Luis Enrique hefur leitt PSG til sigurs í Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð.
Luis Enrique hefur leitt PSG til sigurs í Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð. Getty/Mike Egerton

Fimm ensk lið, fimm spænsk og tvö norsk eru á meðal þeirra sem spila í Meistaradeild Evrópu í haust. Í dag verður dregið um hvaða átta mótherjar bíða hvers liðs í deildarkeppninni, í beinni útsendingu á Vísi og Sýn Sport.

Alls eru 36 lið í keppninni líkt og tvö síðustu tímabil og spila þau öll saman í einni deild. Fyrir dráttinn var þeim skipt í fjóra níu liða styrkleikaflokka og fékk hvert lið tvo mótherja úr hverjum flokki — annan á heimavelli en hinn á útivelli. Hvert lið spilar því átta leiki.

Átta efstu liðin í deildinni komast svo beint í 16-liða úrslit keppninnar og liðin í 9.-24. sæti komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum.

Beina útsendingu frá drættinum, sem hófst klukkan 16:00, má sjá hér að neðan.

Búið er að draga fyrir liðin í efstu tveimur styrkleikaflokkunum og má sjá leikjadagskrá þeirra hér að neðan. Greinin verður uppfærð að drætti loknum.

Úr efsta styrkleikaflokki má nefna að Evrópumeistarar PSG, Barcelona og Manchester City mætast innbyrðis. Englandsmeistarar Arsenal mæta meðal annars José Mourinho og hans mönnum í Real Madrid, og þýsku liðunum Bayern og Dortmund.

Liverpool var nokkuð heppið með drátt en mætir til að mynda Atlético Madrid og Inter. Norsku liðin tvö í keppninni, Bodö/Glimt og Viking, mæta bæði Bayern og Atlético.

Leikjadagskrá liðanna í efsta styrkleikaflokki. Hvert lið fær átta leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki og þar af annan á heimavelli en hinn á útivelli.UEFA

Í 2. styrkleikaflokki voru meðal annars Aston Villa og Manchester United sem nú er með í keppninni á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru, og því í fyrsta sinn með eftir breytingar á fyrirkomulaginu.

United mætir Bayern og Atlético Madrid, sem og Roma, Sporting, Leipzig, Villarreal, Sabah frá Aserbaísjan og lærisveinum Cesc Fabregas í Como sem nú eru með í fyrsta sinn.

Leikir liðanna í styrkleikaflokki 2. Hvert lið spilar átta leiki.UEFA

Styrkleikaflokkana fjóra fyrir dráttinn í dag má sjá hér að neðan.

Styrkleikaflokkur 1

  • Paris Saint-Germain (Frakkland)
  • Bayern München (Þýskaland)
  • Real Madrid (Spánn)
  • Liverpool (England)
  • Inter Milan (Ítalía)
  • Manchester City (England)
  • Arsenal (England)
  • Barcelona (Spánn)
  • Atlético Madrid (Spánn)

Styrkleikaflokkur 2

  • Borussia Dortmund (Þýskaland)
  • Roma (Ítalía)
  • Sporting CP (Portúgal)
  • Aston Villa (England)
  • Porto (Portúgal)
  • Manchester United (England)
  • Club Brugge (Belgía)
  • Real Betis (Spánn)
  • PSV Eindhoven (Holland)

Styrkleikaflokkur 3

  • Feyenoord (Holland)
  • Lille (Frakkland)
  • Bodø/Glimt (Noregur)
  • Napoli (Ítalía)
  • RB Leipzig (Þýskaland)
  • Villarreal (Spánn)
  • Fenerbahçe (Tyrkland)
  • Shakhtar Donetsk (Úkraína)
  • Galatasaray (Tyrkland)

Styrkleikaflokkur 4

  • Como (Ítalía)
  • Lens (Frakkland)
  • Stuttgart (Þýskaland)
  • Slavia Prag (Tékkland)
  • Viking (Noregur)
  • Sabah (Aserbaídsjan)
  • LASK (Austurríki)
  • AEK Aþena (Grikkland)
  • Slovan Bratislava (Slóvakía)

Keppni í Meistaradeildinni hefst dagana 8.-10. september en leikjadagskráin öll mun liggja fyrir í síðasta lagi á laugardag.

Leikdagar í Meistaradeild Evrópu:

  • 1. leikdagur: 8.–10. september
  • 2. leikdagur: 13.-14. október
  • 3. leikdagur: 20.-21. október
  • 4. leikdagur: 3.-4. nóvember
  • 5. leikdagur: 24.-25. nóvember
  • 6. leikdagur: 8.-9. desember
  • 7. leikdagur: 19.-20. janúar
  • 8. leikdagur: 27. janúar

Úrslitaleikurinn verður á Metropolitano-leikvanginum í Madrid, laugardaginn 5. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×