Bein útsending: Dregið í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2026 15:47 Luis Enrique hefur leitt PSG til sigurs í Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð. Getty/Mike Egerton Fimm ensk lið, fimm spænsk og tvö norsk eru á meðal þeirra sem spila í Meistaradeild Evrópu í haust. Í dag verður dregið um hvaða átta mótherjar bíða hvers liðs í deildarkeppninni, í beinni útsendingu á Vísi og Sýn Sport. Alls eru 36 lið í keppninni líkt og tvö síðustu tímabil og spila þau öll saman í einni deild. Fyrir dráttinn var þeim skipt í fjóra níu liða styrkleikaflokka og fékk hvert lið tvo mótherja úr hverjum flokki — annan á heimavelli en hinn á útivelli. Hvert lið spilar því átta leiki. Átta efstu liðin í deildinni komast svo beint í 16-liða úrslit keppninnar og liðin í 9.-24. sæti komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum. Beina útsendingu frá drættinum, sem hófst klukkan 16:00, má sjá hér að neðan. Búið er að draga fyrir liðin í efstu tveimur styrkleikaflokkunum og má sjá leikjadagskrá þeirra hér að neðan. Greinin verður uppfærð að drætti loknum. Úr efsta styrkleikaflokki má nefna að Evrópumeistarar PSG, Barcelona og Manchester City mætast innbyrðis. Englandsmeistarar Arsenal mæta meðal annars José Mourinho og hans mönnum í Real Madrid, og þýsku liðunum Bayern og Dortmund. Liverpool var nokkuð heppið með drátt en mætir til að mynda Atlético Madrid og Inter. Norsku liðin tvö í keppninni, Bodö/Glimt og Viking, mæta bæði Bayern og Atlético. Leikjadagskrá liðanna í efsta styrkleikaflokki. Hvert lið fær átta leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki og þar af annan á heimavelli en hinn á útivelli.UEFA Í 2. styrkleikaflokki voru meðal annars Aston Villa og Manchester United sem nú er með í keppninni á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru, og því í fyrsta sinn með eftir breytingar á fyrirkomulaginu. United mætir Bayern og Atlético Madrid, sem og Roma, Sporting, Leipzig, Villarreal, Sabah frá Aserbaísjan og lærisveinum Cesc Fabregas í Como sem nú eru með í fyrsta sinn. Leikir liðanna í styrkleikaflokki 2. Hvert lið spilar átta leiki.UEFA Styrkleikaflokkana fjóra fyrir dráttinn í dag má sjá hér að neðan. Styrkleikaflokkur 1 Paris Saint-Germain (Frakkland) Bayern München (Þýskaland) Real Madrid (Spánn) Liverpool (England) Inter Milan (Ítalía) Manchester City (England) Arsenal (England) Barcelona (Spánn) Atlético Madrid (Spánn) Styrkleikaflokkur 2 Borussia Dortmund (Þýskaland) Roma (Ítalía) Sporting CP (Portúgal) Aston Villa (England) Porto (Portúgal) Manchester United (England) Club Brugge (Belgía) Real Betis (Spánn) PSV Eindhoven (Holland) Styrkleikaflokkur 3 Feyenoord (Holland) Lille (Frakkland) Bodø/Glimt (Noregur) Napoli (Ítalía) RB Leipzig (Þýskaland) Villarreal (Spánn) Fenerbahçe (Tyrkland) Shakhtar Donetsk (Úkraína) Galatasaray (Tyrkland) Styrkleikaflokkur 4 Como (Ítalía) Lens (Frakkland) Stuttgart (Þýskaland) Slavia Prag (Tékkland) Viking (Noregur) Sabah (Aserbaídsjan) LASK (Austurríki) AEK Aþena (Grikkland) Slovan Bratislava (Slóvakía) Keppni í Meistaradeildinni hefst dagana 8.-10. september en leikjadagskráin öll mun liggja fyrir í síðasta lagi á laugardag. Leikdagar í Meistaradeild Evrópu: 1. leikdagur: 8.–10. september 2. leikdagur: 13.-14. október 3. leikdagur: 20.-21. október 4. leikdagur: 3.-4. nóvember 5. leikdagur: 24.-25. nóvember 6. leikdagur: 8.-9. desember 7. leikdagur: 19.-20. janúar 8. leikdagur: 27. janúar Úrslitaleikurinn verður á Metropolitano-leikvanginum í Madrid, laugardaginn 5. júní. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Real Madrid CF FC Barcelona Arsenal FC Aston Villa FC Liverpool FC Manchester City Manchester United Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Fleiri fréttir Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham Sjá meira
Alls eru 36 lið í keppninni líkt og tvö síðustu tímabil og spila þau öll saman í einni deild. Fyrir dráttinn var þeim skipt í fjóra níu liða styrkleikaflokka og fékk hvert lið tvo mótherja úr hverjum flokki — annan á heimavelli en hinn á útivelli. Hvert lið spilar því átta leiki. Átta efstu liðin í deildinni komast svo beint í 16-liða úrslit keppninnar og liðin í 9.-24. sæti komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum. Beina útsendingu frá drættinum, sem hófst klukkan 16:00, má sjá hér að neðan. Búið er að draga fyrir liðin í efstu tveimur styrkleikaflokkunum og má sjá leikjadagskrá þeirra hér að neðan. Greinin verður uppfærð að drætti loknum. Úr efsta styrkleikaflokki má nefna að Evrópumeistarar PSG, Barcelona og Manchester City mætast innbyrðis. Englandsmeistarar Arsenal mæta meðal annars José Mourinho og hans mönnum í Real Madrid, og þýsku liðunum Bayern og Dortmund. Liverpool var nokkuð heppið með drátt en mætir til að mynda Atlético Madrid og Inter. Norsku liðin tvö í keppninni, Bodö/Glimt og Viking, mæta bæði Bayern og Atlético. Leikjadagskrá liðanna í efsta styrkleikaflokki. Hvert lið fær átta leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki og þar af annan á heimavelli en hinn á útivelli.UEFA Í 2. styrkleikaflokki voru meðal annars Aston Villa og Manchester United sem nú er með í keppninni á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru, og því í fyrsta sinn með eftir breytingar á fyrirkomulaginu. United mætir Bayern og Atlético Madrid, sem og Roma, Sporting, Leipzig, Villarreal, Sabah frá Aserbaísjan og lærisveinum Cesc Fabregas í Como sem nú eru með í fyrsta sinn. Leikir liðanna í styrkleikaflokki 2. Hvert lið spilar átta leiki.UEFA Styrkleikaflokkana fjóra fyrir dráttinn í dag má sjá hér að neðan. Styrkleikaflokkur 1 Paris Saint-Germain (Frakkland) Bayern München (Þýskaland) Real Madrid (Spánn) Liverpool (England) Inter Milan (Ítalía) Manchester City (England) Arsenal (England) Barcelona (Spánn) Atlético Madrid (Spánn) Styrkleikaflokkur 2 Borussia Dortmund (Þýskaland) Roma (Ítalía) Sporting CP (Portúgal) Aston Villa (England) Porto (Portúgal) Manchester United (England) Club Brugge (Belgía) Real Betis (Spánn) PSV Eindhoven (Holland) Styrkleikaflokkur 3 Feyenoord (Holland) Lille (Frakkland) Bodø/Glimt (Noregur) Napoli (Ítalía) RB Leipzig (Þýskaland) Villarreal (Spánn) Fenerbahçe (Tyrkland) Shakhtar Donetsk (Úkraína) Galatasaray (Tyrkland) Styrkleikaflokkur 4 Como (Ítalía) Lens (Frakkland) Stuttgart (Þýskaland) Slavia Prag (Tékkland) Viking (Noregur) Sabah (Aserbaídsjan) LASK (Austurríki) AEK Aþena (Grikkland) Slovan Bratislava (Slóvakía) Keppni í Meistaradeildinni hefst dagana 8.-10. september en leikjadagskráin öll mun liggja fyrir í síðasta lagi á laugardag. Leikdagar í Meistaradeild Evrópu: 1. leikdagur: 8.–10. september 2. leikdagur: 13.-14. október 3. leikdagur: 20.-21. október 4. leikdagur: 3.-4. nóvember 5. leikdagur: 24.-25. nóvember 6. leikdagur: 8.-9. desember 7. leikdagur: 19.-20. janúar 8. leikdagur: 27. janúar Úrslitaleikurinn verður á Metropolitano-leikvanginum í Madrid, laugardaginn 5. júní.
Styrkleikaflokkur 1 Paris Saint-Germain (Frakkland) Bayern München (Þýskaland) Real Madrid (Spánn) Liverpool (England) Inter Milan (Ítalía) Manchester City (England) Arsenal (England) Barcelona (Spánn) Atlético Madrid (Spánn) Styrkleikaflokkur 2 Borussia Dortmund (Þýskaland) Roma (Ítalía) Sporting CP (Portúgal) Aston Villa (England) Porto (Portúgal) Manchester United (England) Club Brugge (Belgía) Real Betis (Spánn) PSV Eindhoven (Holland) Styrkleikaflokkur 3 Feyenoord (Holland) Lille (Frakkland) Bodø/Glimt (Noregur) Napoli (Ítalía) RB Leipzig (Þýskaland) Villarreal (Spánn) Fenerbahçe (Tyrkland) Shakhtar Donetsk (Úkraína) Galatasaray (Tyrkland) Styrkleikaflokkur 4 Como (Ítalía) Lens (Frakkland) Stuttgart (Þýskaland) Slavia Prag (Tékkland) Viking (Noregur) Sabah (Aserbaídsjan) LASK (Austurríki) AEK Aþena (Grikkland) Slovan Bratislava (Slóvakía)
Leikdagar í Meistaradeild Evrópu: 1. leikdagur: 8.–10. september 2. leikdagur: 13.-14. október 3. leikdagur: 20.-21. október 4. leikdagur: 3.-4. nóvember 5. leikdagur: 24.-25. nóvember 6. leikdagur: 8.-9. desember 7. leikdagur: 19.-20. janúar 8. leikdagur: 27. janúar
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Real Madrid CF FC Barcelona Arsenal FC Aston Villa FC Liverpool FC Manchester City Manchester United Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Fleiri fréttir Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham Sjá meira