Innlent

Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst?

Bjarki Sigurðsson skrifar
Pallborðið hefst klukkan 14 og verður hægt að horfa á það í beinni útsendingu í þessari frétt.
Pallborðið hefst klukkan 14 og verður hægt að horfa á það í beinni útsendingu í þessari frétt.

Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. 

Gestir Pallborðsins hafa verið áberandi í umræðunni og ætla tveir þeirra að kjósa já og tveir þeirra nei. Útsending hefst klukkan 14:00 og er áætlað að henni ljúki um klukkan 15:00 en það verður hægt að horfa á upptöku af Pallborðinu á Vísi seinna í dag.

Af Já-hliðinni eru það Jóhannes Óli Sveinsson, forseti Ungs jafnaðarfólks, og María Malmquist, varaformaður Uppreisnar. 

Af Nei-hliðinni eru það Steinar Ingi Kolbeins, fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, og Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi. 

Í spilaranum hér fyrir neðan verður hægt að sjá Pallborðið í heild sinni innan skamms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×