Aftur í skólastjórastólinn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. ágúst 2026 11:48 Valdimar Víðisson var svekktur að vera ekki í meirihluta í Hafnarfirði eftir sveitarstjórnarkosningarnar fyrr á árinu. Vísir Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og oddviti Framsóknarflokksins, hefur tekið við sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Fyrir bæjarstjóratíð hans var hann skólastjóri Öldutúnsskóla í um sextán ár.
Frá þessu greinir Valdimar í færslu á Facebook-síðu skólans. Hann segist koma til starfa fullur tilhlökkunar og sé strax farinn að finna fyrir þeim góða anda sem ríki í skólanum. „Ég hlakka til að sjá ykkur á mánudaginn, hitta ykkur og börnin ykkar og hefja nýtt og spennandi skólaár í Húsaskóla,“ segir Valdimar. Hann hafi starfað í grunnskólum í rúm tuttugu ár og viti hversu mikilvæg góð samskipti séu. „Ég legg mikla áherslu á opið og gott samtal og að foreldrar finni að dyr skólans standi þeim ávallt opnar. Gott samstarf heimilis og skóla er einn af hornsteinum farsællar skólagöngu barna okkar. Við erum nefnilega öll í sama liðinu og höfum sama markmið en það er að börnunum okkar líði vel, þau finni til öryggis og fái tækifæri til að vaxa og dafna,“ segir Valdimar. Stóð til að endurnýja samstarfið Valdimar lét af störfum sem bæjarstjóri fyrr á þessu ári eftir sveitarstjórnarkosningarnar síðustu. Fyrst um sinn stóð til að endurnýja samstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem mynduðu meirihluta á síðustu tveimur kjörtímabilum en þær viðræður fóru fljótt um þúfur og var Valdimar sakaður um trúnaðarbrest. Bæjarstjórinn fyrrverandi var skólastjóri Öldutúnsskóla í um sextán ár eða frá árinu 2008 fram til ársins 2024 og tók við starfi bæjarstjóra Hafnarfjarðar áramótin um 2025. Hann tók við af Rósu Guðbjartsdóttur í samræmi við samkomulag Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022 um að oddviti Sjálfstæðisflokks myndi sitja í stóli bæjarstjóra til 1. janúar 2025 þegar oddviti Framsóknarflokks myndi taka við. Sjá einnig: Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi
Börn og uppeldi Grunnskólar Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Vistaskipti Skóla- og menntamál Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira