Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Árni Sæberg skrifar 11. ágúst 2026 13:20 Einn sakborninga Reykholtsmálsins þegar mállið var þingfest í mars. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða, þar sem sex sæta ákæru fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024, er komin á dagskrá Héraðsdóms Suðurlands. Reiknað er með því að aðalmeðferð taki heila sjö daga.
Sakborningarnir sex, sem tengjast fjölskylduböndum, mættu fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands þann 16. mars síðastliðinn þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest. Aðeins tveir voru á staðnum en aðrir sakborningar mættu í gegnum fjarfundarbúnað. Einn þeirra gerði það frá fangelsinu á Hólmsheiði. Áhugaverð bókun í þingbók Allir sakborningar neituðu sök í öllum ákæruliðum og höfnuðu bótakröfu brotaþola. Einn sakborninga vildi láta bóka í þingbók að hann hefði ekki beitt ofbeldi, ekki lagt á ráðin um ofbeldi og ekki séð ofbeldi framið. Þá vildi hann bóka að fyrir lægi að brotaþoli í málinu skuldaði honum leigu. Gróft ofbeldi Í ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum er atburðarásinni lýst auk ofbeldisins sem hópurinn á að hafa beitt manninn. Fjögur voru handtekin árið 2024, karlmaður á áttræðisaldri, dóttir hans og tengdasonur um þrítugt auk bróður tengdasonarins. Yngsti sakborningurinn er ekki orðinn tvítugur. Í fréttinni hér að ofan er grófu ofbeldi sem fólkið er sagt hafa beitt manninn lýst. Þar segir meðal annars að maðurinn eigi að hafa verið sleginn ítrekað með hnúajárni og honum ógnað með hníf og haglabyssu. Þá hafi honum einnig verið hótað að hann yrði skorinn á háls eða skotinn í höfuðið. Þá segir í ákærunni að honum hafi verið hótað með keðjusög og að farið yrði með hann á bát til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis. Sá sem stóð í hótununum á einnig að hafa farið í útibú Landsbankans til að fá upplýsingar um hvernig hann gæti fengið aðgang að bankareikningi mannsins án hans aðkomu. Í ákærunni kemur fram að vegna ofbeldisins hafi maðurinn meðal annars hlotið blæðingu í framheila, mar í kringum hægra auga, brot í nefbeini, bólgu á hægri kjálka, brot bæði hægra og vinstra megin á kjálka, tapað fimmtán tönnum, mar við vanga og á hálsi, fjögur rifbeinsbrot og mar víðs vegar um líkamann. Fjölmargir í litlum sal Sem áður segir eru sakborningar málsins sex talsins og verjendur þar af leiðandi jafnmargir. Þá verða viðstaddir þinghaldið sækjandi og réttargæslumaður brotaþola. Bent var á þennan fjölda aðila máls og málflytjenda við þingfestingu málsins í eina sal Héraðsdóms Suðurlands á Selfossi og vakin athygli á því að salurinn rúmar ekki marga. Þá vakti einn verjenda máls á því að þrír verjenda eru fullvaxta karlmenn í nokkuð góðum holdum og spurði hvort ekki væri ráð að færa aðalmeðferðina í stærri sal. Dómari málsins, Sigurður G. Gíslason, sagðist þá ekki telja neina ástæðu til þess, enda væri salurinn sá eini sem dómurinn hefði úr að moða. Samkvæmt vefsíðu dómsins hefur salurinn verið tekinn frá í heila sjö daga frá og með mánudeginum næstkomandi. Þó er ekki óþekkt að dómstólar taki sal á leigu vegna plássleysis í dómshúsinu en það var gert í Bankastrætis Club-málinu svokallaða árið 2023. Blaðamanni er ekki kunnugt um önnur dæmi um slíkt. Aðalmeðferð í því máli fór fram í veislusalnum Gullhömrum þar sem sakborningar þess voru 25 talsins, verjendur jafnmargir og réttargæslumenn tveir. Þá var þó gert ráð fyrir að aðalmeðferð tæki skemmri tíma en í Reykholtsmálinu, eða fimm daga.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Árborg Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira