Fjárkúgun í Reykholti

Fjárkúgun í Reykholti

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl 2024.

Fréttamynd

Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm

Andri Már Mortenssen Birgisson var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðkomu sína að Reykholtsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp yfir honum og fimm öðrum en þeim var gefið að sök að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Andri hafi verið yfir­vegaður við hand­tökuna

Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag.

Innlent
Fréttamynd

Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“

Pétur Már Mortensen Birgisson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu og jafnframt sá yngsti, viðurkennir að hafa beðið brotaþola afsökunar á meðan umrætt mál stóð yfir. Hann segist ekki hafa þorað að fara af vettvangi vegna ótta við eldri bróður sinn. Skýrslutökunni lauk skyndilega eftir að símtöl, þar sem heyrðist í bróður hans, voru spiluð.

Innlent
Fréttamynd

Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.

Innlent
Fréttamynd

Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát

„Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína.

Innlent
Fréttamynd

Hafi aldrei farið í Reyk­holt

Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hefst í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Neita öll sök í Reykholtsmálinu

Öll sex sem eru ákærð fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024 neita sök í málinu. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili mannsins, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.

Innlent
Fréttamynd

Grimmdar­legu of­beldi lýst í á­kærunni

Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi.

Innlent
Fréttamynd

Sakamálin sem skóku þjóðina

Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést.

Innlent
Fréttamynd

Einn til við­bótar í gæslu­varð­hald en öðrum sleppt

Einn maður til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Öðrum einstaklingi hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en hefur áfram stöðu sakbornings í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Sleppt úr haldi lög­reglu

Einum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Atburðarásin er að skýrast að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Vænsti maður og harð­duglegur

Íbúar í Reykholti og Laugarási bera eldri karlmanni sem hefur starfað og búið þar í lengri tíma ákaflega vel söguna. Þar fari harðduglegur vænsti maður sem fólk skilur ekki að einhver hafi viljað gera mein. Fjögur eru í gæsluvarðhaldi grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun.

Innlent
  • «
  • ‹
  • 1
  • 2
  • ›