Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Árni Sæberg skrifar 7. ágúst 2026 16:52 Teitur og fjölskylda búa í Vesturbænum. Vísir Teitur Atlason, fyrrverandi varaborgarfulltrúi, hefur fengið sig fullsaddan af innbrotahrinu sem nú geisar í miðborg Reykjavíkur og nágrenni. Nú síðdegis var brotist inn í bílskúr heimilis hans á meðan eiginkona hans var heima. Hann kallar eftir því að lögreglan taki sig taki og stingi þeim sem eru ábyrgir fyrir hrinunni í steininn.
Teitur greinir frá innbrotinu í Facebookhópnum Vesturbærinn og deilir stuttu myndskeiði, sem dyrabjöllumyndavél heimilisins náði af innbrotsþjófinum. „Þess má geta að kona mín var heima en náði ekki í skottið á þessum innbrotsþjófi. Ég er miður mín og vil að þessu ömurlega ástandi linni,“ segir hann meðal annars. Engir hundrað þúsund kallar en atvikið óþægilegt Þegar Vísir náði tali af Teiti var hann í miðjum klíðum við að negla slagbrand fyrir dyrnar að bílskúrnum. Hann segir að innbrotsþjófurinn hafi spennt upp hurðina án þess að skemma hana illa, enda hafi hún verið orðin gömul og hálfónýt. „En konan mín var samt heima, það virðist ekki hafa stoppað þessa þrjóta. Ég sé samt í fljótu bragði ekki að neitt sé horfið en mér sýndist viðkomandi skoppa í burtu með eitthvað innanklæða. Þannig að það kemur bara í ljós en það er svo sem ekkert ógurlegt tjón, þetta eru verkfæri sem ég er með hérna, engir hundrað þúsund kallar.“ Hugsanlega „spotter“ á ferð Þrátt fyrir að tjónið virðist við fyrstu sýn ekki mikið segir Teitur að innbrotinu fylgi alls ekki góð tilfinning. Sér í lagi þar sem hann hafi rætt við mann sem þekki til slíkra mála, sem telji að um svokallaðan „spotter“ gæti hafa verið um að ræða. Það er að segja innbrotsþjóf sem fer á undan til þess að taka aðstæður út áður en skæðari þjófar láta til skarar skríða. Hann hafi verið nýkominn heim og því ekki búinn að kæra atvikið til lögreglu, sem hann muni þó gera og afhenda lögreglu upptöku úr öryggismyndavél heimilisins. „Það er eitthvað að gerast núna. Það er einhver plága núna hérna í 101 og 107. Það var brotist síðast inn í bíl hjá dóttur minni í fyrradag og fjöldann allan af bílum við Ásvallagötu sömu nótt. Það þarf ekki annað en að skanna hverfasíðurnar til að sjá að á hverjum einasta degi er einhver tilkynning um eitthvað ömurlegt.“ Margir eigi við vanda að stríða en standi ekki í innbrotum Teitur segist gera sér grein fyrir því að sá sem braust inn til hans sé að öllum líkindum ekki þjófur í atvinnuskyni heldur einstaklingur sem á við fíkniefnadjöfulinn að etja. „Þetta er fólk sem er örugglega fíklar eða eitthvað slíkt en ég vil samt ekki hafa þau inni í mínum híbýlum, þó að þau eigi örugglega bágt. Það eru margir sem eiga bágt en stela ekki. Það þarf að breyta þessum hugsunarhætti hjá þjóðinni að það sé einhvern veginn afsökun fyrir afbrotum að viðkomandi eigi við einhvern vanda að stríða. Margir eiga við vanda að stríða en eru ekki í innbrotum.“ Þá segist hann telja það barnalegan hugsunarhátt að halda því fram að innbrotahrina af þessu tagi geti á einhvern hátt verið öðrum að kenna en þeim sem brjótast inn. „Viðkomandi þarf að gera eitthvað annað, finna aðrar leiðir. Og það á ekki að skamma stjórnmálamennina þó að einhver brjótist inn í bílskúr í 101. Það er bara algjör þvæla.“ Lífið aðeins verra Sem áður segir var kona Teits heima þegar innbrotsþjófurinn spennti upp hurðina og að hans sögn gerir það innbrotið þeim mun óþægilegra. „Maður er aðeins meira vakandi, þú veist. Lífið er aðeins verra eftir þetta, þökk sé einhverri manneskju sem á kannski voðalega bágt, en mér er alveg sama. Ég vil bara að hún skili því sem hún tók af mér.“ Loks hvetur hann Reykvíkinga og alla landsmenn til þess að vera með augun vakandi og hætta að umbera „þetta rugl“. Ástandið sé orðið óþolandi og fregnir berist af innbrotum á hverjum einasta degi. „Við þurfum að stoppa þetta einhvern veginn. Ég á ekki endilega svör við því hvernig á að stoppa þetta en það hlýtur að koma til að lögreglan þurfi að girða sig í brók og koma þessu fólki úr umferð. Það er vitað hverjir þetta eru.“
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira