Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. ágúst 2026 07:01 Hægt er að njóta ótrúlegs útsýnis uppi á Bolafjalli á góðviðrisdögum sem þessum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Veginum upp að útsýnispalli Bolafjalls verður lokað 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi verður á sólu. Búist er við mikilli aðsókn ferðamanna á Vestfirði en almyrkvinn verður aðeins sýnilegur á landinu vestanverðu. „
Honum verður lokað fyrir almennri umferð,“ staðfestir Kristinn Gauti Einarsson, staðgengill bæjarstjóra Bolungarvíkur. Þess í stað verður hægt að bóka sér far með rútu úr bænum og upp á topp fjallsins. Hægt verður að tryggja sér far með því að bóka fyrir fram en einnig verður hægt að kaupa miða samdægurs við sölubás í bænum. Yfirstandandi er samráð ýmissa aðila, svo sem ríkisstjórnar, lögreglu og sveitarfélaga, í aðdraganda almyrkvans og verður svokallaður „skilgreindur safnstaður“ bæði á tjaldsvæði bæjarins og uppi á fjallinu. Á þessum sérstaklega skilgreindu safnstöðum þurfa ákveðnir hlutir að vera til staðar, líkt og salernisaðstaða. Björgunarsveit mun sinna gæslu uppi á fjallinu og gestum verður haldið innan afmarkaðs svæðis. Kristinn segir erfitt að vita hversu miklum fjölda eigi að búast við. „Maður hefur heyrt ýmsar tölur,“ segir hann en í fréttum hefur verið talað um að fjöldi ferðamanna á landinu gæti náð áttatíu þúsund þegar almyrkvinn skellur á. Almyrkvinn mun vara einna lengst á Vestfjörðum og er búist við margmenni þar en Kristinn segir Bolvíkinga auðveldlega geta tekið á móti þrjú þúsund manns í bænum. Ljóst er þó að stóri örlagavaldurinn verður veðurspáin, eins og í svo mörgu öðru. „Það verður mjög spennandi að fylgjast með veðurspánni dagana fyrir,“ segir Kristinn og hlær við.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bolungarvík Ferðaþjónusta Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Sjá meira