Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Andri Broddason skrifar 1. ágúst 2026 20:36 Mikael Egill Ellertsson leikur með Genoa Ítalíu og er undirbúningstímabilið í fullum gangi. Vísir/Getty Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa í dag þegar liðið vann Leicester City í vináttuleik. Genoa skoraði eina mark leiksins og skipti ítalska liðið öllum sínum leikmönnum út í hálfleik.
Leicester City tók á móti Genoa í vináttuleik á King Power-vellinum í dag. Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa en strax frá fyrstu mínútu var Leicester með yfirhöndina í leiknum. Enska liðið var meira með boltann og skapaði sér fleiri færi í fyrri hálfleik en þrátt fyrir það var markalaust í hálfleik. Genoa ákvað að gefa leikmönnum sínum jafnt álag á undirbúningstímabilinu og var öllum ellefu leikmönnunum sem byrjuðu leikinn skipt út í hálfleik. Mikael Egill spilaði því aðeins fyrri hálfleik leiksins. Í seinni hálfleik hélt Leicester áfram að vera með mikla yfirburði á vellinum og skapaði sér fín færi en liðið náði ekki að nýta þau. Þvert gegn gangi leiksins kom Lorenzo Colombo Genoa yfir á 69. mínútu. Leicester hélt áfram að reyna að sækja og koma inn jöfnunarmarki en það tókst ekki og endaði leikurinn með 1-0 sigri Genoa. Þrátt fyrir að Genoa hafi skipt út öllum sínum leikmönnum spilaði Leicester með nær sama liðinu á vellinum allan tímann. Enska liðið gerði aðeins tvær skiptingar: Benjamin Nelson þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik og í lokin var framherjinn Bobby De Cordova-Reid tekinn af velli fyrir Kirsten Otchere.
Ítalski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjá meira