UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 28. júlí 2026 19:16 Bróðir tengdasonar Donalds Trump á fyrirtækið sem á að stýra fjárfestingafyrirtæki sem FIFA hyggst stofna. Samkvæmt fregnum frá Bretlandi mun Infantino fá milljarða í eigin vasa ef áformin verða að veruleika. Hannah Peters - FIFA/FIFA via Getty Images Greina má reiði hjá stjórnendum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sem birti harðorða yfirlýsingu síðdegis. Tilefnið eru meint plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta.
The Times og Financial Times greindu fyrst frá áformum stjórnenda hjá FIFA sem hyggjast bjóða fjárfestum að eiga hlut, þó ekki stjórnarhlut, í nýju dótturfélagi FIFA sem ber heitið FIFA Forward Enterprise (FFE) sem muni „samþætta viðskipta- og viðburðastarfsemi sambandsins“. Í yfirlýsingu FIFA um málið segir að þegar málið verði samþykkt sé gert ráð fyrir því að Thrive Eternal muni leiða fyrirhugaðan fjárfestingahóp FFE. Thrive er bandarískt fjárfestingafyrirtæki sem er stofnað af Joshua Kushner. Sá er bróðir Jared Kushner, tengdasonar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta. Náið samband Trump og Infantino hefur sætt gagnrýni í aðdraganda og í kringum nýafstaðið heimsmeistaramót sem fór að stærstum hluta fram í Bandaríkjunum. Í yfirlýsingu FIFA kemur fram að Infantino og aðrir stjórnendur sambandsins muni koma að þróun verkefnisins en hvert hlutverk forsetans verður nákvæmlega fylgir ekki sögunni. Infantino segir í yfirlýsingu FIFA um málið að allar aðildaþjóðir að sambandinu muni græða á þessu fyrirhugaða fyrirkomulagi. Öll aðildarsambönd að FIFA muni fá aðgang að allt að 20 milljónum dala,tvo og hálfan milljarð króna, í „einskiptis fé“ (e. one-off capital). Í fréttum Times og Financial Times kemur fram að Infantino geti sjálfur grætt tugi milljónir dala á þessu fyrirkomulagi. UEFA: Þetta fer yfir öll mörk Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, gagnrýnir áætlanir FIFA harðlega í yfirlýsingu sem sambandið birti síðdegis. Hætt sé við því að FIFA muni í samræmi við áætlanirnar stækka eigin mót, þétta enn frekar dagatal fótboltans sem muni draga úr vægi annarra keppna, til að mynda þeirra sem heyra undir UEFA, líkt og Meistaradeild Evrópu. „Þetta fer yfir mörk sem stjórnunarstofnanir knattspyrnunnar ættu aldrei að fara yfir,“ segir í yfirlýsingu UEFA. UEFA statement on The Times article: ⬇️ pic.twitter.com/ye1tjfWRCb— UEFA (@UEFA) July 28, 2026 „UEFA tekur þetta afar alvarlega. Það sama ætti að eiga við um knattspyrnusambönd allra landa. Það sama á við um alla hagsmunaaðila sem láta sig framtíð íþróttarinnar varða,“ segir í yfirlýsingunni og beinir þar af leiðandi orðum sínum til KSÍ og annarra knattspyrnusambanda ríkja víða um heim. „Sál og stjórnun knattspyrnunnar eru ekki eignir til að eiga viðskipti með - sérstaklega þar sem ekkert gagnsæi er um hverjir hagnast fjárhagslega. Enginn okkar á knattspyrnuna. Það er ekki FIFA að selja hana.“ Líklegt má þykja að málið verði til umræðu á næsta stjórnarfundi FIFA í haust. Vera má að áætlanir FIFA verði lagðar fyrir öll 211 aðildarríki á næsta allherjarþingi sambandsins í Marokkó í mars næstkomandi
FIFA UEFA KSÍ HM 2026 í fótbolta Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Gianni Infantino, forseti FIFA, fór mikinn á Instagram þar sem hann tók til varna fyrir sjálfan sig og Alþjóða knattspyrnusambandið. Hann sakaði þá sem hafa gagnrýnt hann og FIFA um að dreifa hatri. 27. júlí 2026 08:30 The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Norska knattspyrnusambandið ætlar að senda inn kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eftir að hann blandaði sér í niðurfellingu á leikbanni Folarin Balogun, að því er The Times greinir frá. 23. júlí 2026 08:46 Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu. 22. júlí 2026 13:07 Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, hefur varað við því að stækkun heimsmeistaramótsins í 64 lið myndi þýða áframhaldandi eyðileggingu fótboltaiðnaðarins undir stjórn Gianni Infantino, forseta FIFA, sem hann hvatti til að segja af sér. 22. júlí 2026 09:32 Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Alls eru 211 lönd og landsvæði aðilar að FIFA og meira en tvö hundruð þeirra styðja Gianni Infantino sem forseta FIFA fyrir forsetakosningarnar í mars. 17. júlí 2026 19:22 Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Mannréttindasamtök hafa kært Gianni Infantino, forseta FIFA, til Alþjóðaólympíunefndarinnar vegna tengsla hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta á heimsmeistaramótinu í fótbolta. 14. júlí 2026 20:30 Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, gaf lítið fyrir það að Gianni Infantino hafi haft áhrif á afléttingu banns Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á miðju heimsmeistaramóti. 8. júlí 2026 12:01 Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Sjá meira
Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Gianni Infantino, forseti FIFA, fór mikinn á Instagram þar sem hann tók til varna fyrir sjálfan sig og Alþjóða knattspyrnusambandið. Hann sakaði þá sem hafa gagnrýnt hann og FIFA um að dreifa hatri. 27. júlí 2026 08:30
The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Norska knattspyrnusambandið ætlar að senda inn kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eftir að hann blandaði sér í niðurfellingu á leikbanni Folarin Balogun, að því er The Times greinir frá. 23. júlí 2026 08:46
Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu. 22. júlí 2026 13:07
Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, hefur varað við því að stækkun heimsmeistaramótsins í 64 lið myndi þýða áframhaldandi eyðileggingu fótboltaiðnaðarins undir stjórn Gianni Infantino, forseta FIFA, sem hann hvatti til að segja af sér. 22. júlí 2026 09:32
Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Alls eru 211 lönd og landsvæði aðilar að FIFA og meira en tvö hundruð þeirra styðja Gianni Infantino sem forseta FIFA fyrir forsetakosningarnar í mars. 17. júlí 2026 19:22
Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Mannréttindasamtök hafa kært Gianni Infantino, forseta FIFA, til Alþjóðaólympíunefndarinnar vegna tengsla hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta á heimsmeistaramótinu í fótbolta. 14. júlí 2026 20:30
Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, gaf lítið fyrir það að Gianni Infantino hafi haft áhrif á afléttingu banns Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á miðju heimsmeistaramóti. 8. júlí 2026 12:01