Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Agnar Már Másson skrifar 27. júlí 2026 11:27 Meintu vasaþjófarnir við Skógafoss glenntu sig að ferðamanninum þegar hann sakaði þá um þjófnað. Vísir/Agnar Lögreglunni á Suðurlandi bárust tvær tilkynningar um vasaþjófnað um helgina. Þá varð einnig atvik við Skógafoss þar sem ferðamaður hnakkreifst við meinta vasaþjófa, hrifsaði af þeim síma og kastaði honum út á tún. Lögreglumaður á Suðurlandi segir það reglulegt orðið að tilkynningar berist um vasaþjófnað.
Blaðamaður varð vitni að því við Skógafoss síðdegis í gær, sunnudag, að upp úr sauð milli ferðamanns og tveggja kvenna sem hann vildi meina að væru vasaþjófar. Rifrildi höfðu brotist út milli ferðamannsins og meintu vasaþjófanna, með þeim afleiðingum að hann tók síma úr hendi annarrar þeirra og fleygði honum út á túnið við göngustíginn. „Vasaþjófar!“ hrópaði hann þá og sagði viðstöddum að kíkja í vasana sína til að athuga hvort eitthvað vantaði. Málið við Skógafoss ratað ekki á borð lögreglu en Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi, segir að tvær tilkynningar hafi borist um vasaþjófnað á Suðurlandi um helgina; á Þingvöllum á laugardag og svo við Seljalandsfoss á sunnudag. „Þetta er reglulegt,“ segir Einar í samtali við Vísi. Á undanförnum mánuðum hafa ómerktir lögreglumenn verið á vappi um helstu ferðamannastaði á Suðurlandi í von um að koma upp um vasaþjófa. „Það hefur alveg náðst einhver árangur með því að fara í eftirlit ómerkt,“ svarar Einar aðspurður. Lögreglu grunar að vasaþjófar séu oft gerðir út hingað til lands til skamms tíma. „Okkur grunar að þetta séu hópar sem eru gerðir út í þetta, og að það sé skipulögð brotastarfsemi í raun og veru,“ segir Einar. Á síðustu misserum hefur tilkynningum um vasaþjófnað á Íslandi fjölgað, einkum á helstu ferðamannastöðum, en í fyrrasumar var greint frá hópi vasaþjófa sem var sagður herja á miðborgina. Setti lögreglan upp varðturna til að bregðast við því. „Þetta eru einhverjir hópar – oftar erlendir ríkisborgarar – sem koma hérna, sem stoppa kannski stutt, fara á staði sem þeir telja vera vænlega fyrir sig, svo eru þeir ekkert endilega hér í marga daga. Þá eru þeir bara farnir og byrja að stunda þessa iðju annars staðar.“
Lögreglumál Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Rangárþing eystra Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira