Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 17:31 Vozinha í leiknum á móti Argentínu á HM og hér sækir sjálfur Lionel Messi að honum. Getty/Chris Brunskill Hann varð öllum á óvörum ein af stærstu stjörnum heimsmeistaramótsins í fótbolta þrátt fyrir að vera nær algjörlega óþekktur fyrir utan heimalandið fyrir keppnina. Hann var án liðs á mótinu en nú hefur hann samið.
Vozinha, hinn fertugi markvörður Grænhöfðaeyja, sem sló í gegn með því að halda hreinu á móti verðandi heimsmeisturum Spánar í fyrsta leik, hefur komist að samkomulagi við síleska félagið Colo Colo um félagaskipti, að sögn Aníbal Mosa, forseta félagsins. „Vozinha verður leikmaður Colo Colo. Á næstu dögum mun hann ferðast til Síle, gangast undir hefðbundna læknisskoðun og verður síðan kynntur hér á Estadio Monumental,“ sagði Mosa við staðbundna fjölmiðla, samkvæmt fréttastofunni Reuters. O goleiro Vozinha, destaque de Cabo Verde na Copa do Mundo, é o novo reforço do Colo-Colo, do Chile. Via: @GerGarciaGrova 📷AFP / 📷Divulgação pic.twitter.com/aWKGs1SnmM— LIBERTA DEPRE (@liberta___depre) July 24, 2026 Félagaskiptin hafa þó ekki formlega gengið í gegn. Colo Colo hefur þó birt kynningarmynd á X með mynd af því sem virðist vera einkennandi hárgreiðsla markvarðarins. Í færslunni stendur: „Velkominn. Við bíðum eftir þér.“ Vozinha varð einn af þeim sem mest var rætt um á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann hjálpaði Grænhöfðaeyjum, sem tóku þátt í fyrsta sinn, að komast í 16-liða úrslit þar sem liðið féll úr leik eftir framlengingu gegn Argentínu. Athygli þessi leiddi til þess að markvörðurinn fór úr rúmlega þrjátíu þúsund fylgjendum á Instagram í að hafa nú tæplega þrjátíu milljónir. Colo Colo, nýja félagið hans, er bara með 2,6 milljónir fylgjenda á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Colo-Colo (@colocolooficial)
Síle HM 2026 í fótbolta Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira